Ský - 01.02.1999, Blaðsíða 58
AKUREYRI
LANDIÐ ÞITT
EYJAFJÖRÐUR
Ferskar framtíðarhugmyndir
LeikféLag Akureyrar á tímamótum.
Sigurður Hróarsson. „Án þess að farið sé út í einstök verkefni þá get
ég sagt, að næsta leikár mun bera aldamótunum merki á einn eða
annan hátt."
Um mitt síðasta ár tók Sigurður Hróarsson við stöðu
leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar á nýjan leik, en
áður stýrði hann félaginu við góðan orðstír á árun-
um 1989 til 1991. Þegar Sigurður kom til starfa lá verkefna-
val leikársins fyrir, þannig að hann nær ekki að setja svip
sinn á starf LA að ráði þennan veturinn. Sigurður er hins-
vegar með margar nýjar hugmyndir í farvatninu.
„Ég hef mikinn áhuga á að víkka út starfsemina á ýmsan
hátt. Til dæmis er nauðsynlegt fyrir félagið að hafa að-
gang að öðru sýningarrými en eingöngu Samkomuhúsinu.
Ég vil skoða samstarfssamninga við leikhús á höfuðborgar-
svæðinu, bæði hvað snertir skipti á leikurum og sýningum
og eins er það mjög spennandi að við hreinlega tökum
þátt í uppfærslum fyrir sunnan með beinum hætti og fáum
þær síðan hingað til okkar. Þetta eru nokkur mál sem við
erum að velta fyrir okkur ásamt mörgu öðru."
Aðspurður hverju leikhúsáhugafólk megi eiga von á í
sambandi við verkefnaval Leikfélagsins segir Sigurður þær
línur óðum vera að skýrast.
„Á næsta leikári setjum við a.m.k. upp fjórar sýningar.
Ég tel það lykilatriði fyrir félagið að ná því marki með öll-
um tiltækum ráðum. í vetur er aðeins gert ráð fyrir þremur
uppfærslum sem er of lítið. Án þess að farið sé út í einstök
verkefni, þá get ég sagt, að næsta leikár mun bera alda-
mótunum merki á ýmsan hátt. Einnig má það koma fram,
að eitt verkanna verður eindreginn gleðileikur en ég tel
kominn tíma til að LA setji slíkt verk á svið og svo á reyndar
að vera á hverju ári. Síðast en ekki síst ætlum við að hefja
leiksýningar hér á sumrin. Við sjáum til með næsta sumar,
en sumarið 2000 verðum við tvímælalaust með eitthvað á
fjölunum, hvort sem það verður fyrir innlendan markað
eða erlenda ferðamenn, eða jafnvel hvorutveggja."
I leit að Jesúm Listasafn Akureyrar.
Það er margt spennandi á döfinni
hjá Listasafni Akureyrar næstu
vikur og mánuði. Þann 6. mars
opnar sýningin „Draumur um hreint
form“ sem byggir á samnefndri sýningu
er Listasafn íslands setti upp um
strangflatarmálverk og byggingarlist
6. áratugarins í íslenskri listasögu.
Byggingarlistasögukafli sýningarinnar
hefur verið endurunninn út frá dæmum
um funkis-stefnuna í byggingarlist á
Akureyri.
Þann 24 apríl opnar svo spennandi sýning sem feng-
ið hefur titilinn „Jesús Kristur - eftirlýstur11. Sýningin fjall-
ar um ímynd Jesú Krists gegnum söguna og hvernig
hún er túlkuð í myndlist.
„Jesús Kristur er sú persóna í vestrænni menningu er
mest hefur verið fjallað um. Hann er miðpunktur. Lista-
menn hafa tjáð persónu hans út frá gildum samfélags-
ins og mismunandi áherslur og túlk-
anir gefa djúpa innsýn í það,“ segir
Haraldur Ingi Haraldsson, forstöðu-
maður Listasafnsins.
Lítill vafi er á því að ýmis verk á
sýningunni eiga eftir að vekja upp
hörð viðbrögð. Ofarlega í þeim flokki
er til dæmis verk Ijósmyndarans
Andre Serrano, Piss Christ, sem hef-
ur tryllt margan íhalds- og guðs-
manninn, hvar sem það hefur verið
sýnt. Ljósmyndin sýnir róðurkross
baðaðan í gulrauðri birtu. Þetta er ákaflega falleg
mynd, en það sem hefur sjokkerað fólk og valdið upp-
námi er að til að skapa þessa birtu stakk Serrano
krossinum ofaní ker sem var fullt af hlandi og reyndar
fleiri líkamsvessum listamannsins. Sú nýstárlega leið
er farin á sýningunni, að ekki eru sýnd frumeintök
verkanna heldur stækkaðar Ijósmyndir af hverju verki.
Listasafn Akureyrar í Grófargili.
56 ský