Ský - 01.02.1999, Page 44
BJÓRINN
unglinga. Aðrir telja þetta litlu breyta
þar sem áfengi hafi verið auglýst bæði
leynt og ljóst árum saman og stöðugt
meira eftir því sem aðgangur Islend-
inga eykst að erlendum fjölmiðlum. I
ljósi þess hve við drekkum í rauninni
lítið af bjór er ekki undarlegt þó inn-
flytjendur og framleiðendur vilji ólmir
fá að auglýsa. Þó neyslan tvöfaldaðist
værum við samt tiltölulega hófsamir
miðað við margar aðrar þjóðir. Önnur
breyting sem er í farvatninu er að lík-
legt verður að telja að fljótlega verði
leyft að selja bjór og léttvín í matvöru-
verslunum. Undan slíkri þróun verður
trúlega ekki vikist vilji Islendingar
hafa samfélag sitt líkt því sem gerist í
nágrannalöndum okkar. Margir telja
ennfremur að hátt verðlag á bjór og á-
fengi fæli ferðamenn frá landinu og
stuðli að auknu smygli og lögbrotum.
Því sé rétt fyrir hið opinbera að leita
annarra leiða í skattheimtu sinni en
með svimandi háu áfengisverði. Það
verður því að telja fremur líklegt að á
næstu árum verði okkur auðveldað að
drekka meira öl hvort sem við kjósum
að slökkva þorstann eða ekki.
Páll Asgeir Asgeirsson er blaðamaður búsettur í
Kópavogi og drekkur öl á hveifiskránni Catalínu.
Margrét Frímannsdóttir |
formaður Alþýðubandalagsins
Af hverju varst þú á móti því að bjórinn yrði leyfður?
„Ég var og er þeirrar skoðunar að þetta auki hættuna á drykkju ungs fólks.
Það var fyrst og fremst ástæðan. Ég vil yfirhöfuð gera það sem ég get til
þess að draga úr drykkju landans frekar en að stuðla að aukningu hennar.”
Ef greidd væru atkvæði í dag, myndir þú kjósa eins?
„Þessu er erfitt að svara. Ég býst við að ég væri hlutlaus eða jafnvel
fylgjandi og þá að því gefnu að eftirlit væri aukið og hert. Það er forsendan.
Kröfur um aukið frelsi kalla á hert eftirlit, sérstaklega hvað varðar aldurs-
takmark og ef sú yrði raunin sæi ég ekkert þessu til fyrirstöðu.”
Drekkur þú bjór?
„Nei. Afskaplega lítil drykkjumanneskja. Mér finnst bjór einfaldlega hund-
vondur en er ekki á móti honum umfram aðra áfenga drykki.”
Sverrir Hermannsson [
formaður Frjálslynda flokksins
Af hverju varst þú á móti því að bjórinn yrði leyfður?
„Þetta var hið mesta óhappaverk. Það eina sem hlotist hefur af þessu
er stóraukin drykkja ungmenna og aukning á vanda sem var nægur fyr-
ir. Allar tilslakanir í þessum efnum eru til bölvunar og það þýðir ekkert
að tala við mig um eitthvað frjálsræðiskjaftæði hvað þetta varðar. Og
nú vilja þeir fara að leyfa hassið! Ég er algerlega á móti þessu.”
Ef greidd væru atkvæði í dag, myndir þú kjósa eins?
„Ég er ennþá á móti bjórnum, heilshugar.”
Drekkur þú bjór?
„Nei, það má heita aldrei núorðið. Ég gerði það svolítið hér í den tíð í
Danmörku, drakk tegund sem hét Carlsberg Guld. En ég þarf að vera
því þyrstari í dag til þess að ég fái mér bjórsopa.”
1 Steingrímur J. Sigfusson
alþingismaður
Af hverju varst þú á móti því að bjórinn yrði leyfður?
„Ég held að það sjáist, sé farið yfir ræður mínar frá þessum tíma að ég
tók ekki kategóríska afstöðu gegn bjórnum, vildi ekki banna hann um
aldur og ævi. Mér fannst bara ekki rétt staðið að þessu. Allsherjar, ein-
hliða tilslökun er leiðin sem var farin og ég er mótfallinn því að hverfa
frá aðhaldssemi í þessum málum. Þessu hefði átt að mæta með öflugu
forvarnarstarfi. Rannsóknir sýna að bjórinn er slæmur að því leyti að
hann stuðlar mest að drykkju ungmenna og því vildi ég forða.”
Ef greidd væru atkvæði í dag, myndir þú kjósa eins?
„Það er erfitt að segja og tæpast sanngjarnt að stilla manni upp við
vegg með svona spurningu. Þetta er búið og gert og bjórinn kominn.
Hver ákvörðun er barn síns tíma og það verður að viðurkennast að
málin hafa sem betur fer ekki farið á versta veg og báðir málstaðir
höfðu sitthvað til síns máls. Almennt viðhorf mitt er að sjálfsögðu hið
sama og ef þú spyrðir mig hvort ég sæi eftir því að greiða atkvæði á
móti væri svarið nei. Gæta verður ýtrustu varúðar áður en ráðist er í
svona stórt skref og öll umræða er til góða.”
Drekkur þú bjór?
„Já, já. Ég reyni nú samt að nota hann í hófi. Ég held ég hafi nú verið
einn fárra sem meira að segja sagði það í ræðustól á Alþingi. Það var
engan vegin af bindindishugsjón að ég var á móti bjórnum.”
1 Páll Pétursson |
félagsmálaráðherra
Af hverju varst þú á móti því að bjórinn yrði leyfður?
„Ég bjóst við að áfengisneysla myndi aukast og var hún þó kappnóg
fyrir, auk þess taldi ég víst að drykkja ungs fólks myndi færast í aukana.
Þetta hefur allt saman komið á daginn. Reyndar voru krakkar svo sem
farnir að svelgja í sig brennivín fyrir þetta og höfðu gert lengi en þau
drekka held ég ekkert minna sterk vín í dag. Bjórinn er bara viðbót.”
Ef greidd væru atkvæði í dag, myndir þú kjósa eins?
„Ég efast um það. Og ef svo ólíklega færi að reynt yrði að skrúfa aftur
fýrir bjórinn þá er það einfaldlega ómögulegt.
Það er búið að venja fólk á hann.”
Drekkur þú bjór?
„Afar lítið. Ég er alls ekki bindindismaður en mér leiðist bjór
og þykir hann ekkert sérstakt lostæti.
Ég fæ mér bara annað í staðinn.”
Það var Finnur Vilhjálmsson sem ræddi við Margréti, Sverri, Pál og Steingrím.
42 ský