Ský - 01.02.1999, Blaðsíða 48

Ský - 01.02.1999, Blaðsíða 48
...allt , það er varla hægt að lýsa New York betur. Þar er allt. Borg- in er einskonar miðpunktur hinnar vestrænu menningar. Og alltaf kemur hún manni á óvart. Háhýsin eru vissulega á sínum stað, en einhvem veg- inn er þetta alltaf stærra en í minningunni. Svo eru það hverfin, hvert með sínu sniði. Það er stundum eins og að skreppa til annarrar heimsálfu að fara bæjarleið á milli hverfa. Og séð ofan frá Empire State bygging- unni renna borgarljósin saman í eitt ljósahaf sem endar einhvers staðar langt, langt handan við sjóndeildarhringinn. Hvflík stærð. það er ekki hægt að láta sér leiðast í New York, þarna eru 353 kvik- myndahús, flest með mörgum sölum, þannig að á venjulegum degi em því sem næst 5.648 kvikmyndasýningar í borginni. Vilji fólk heldur fara í leikhús er best að hafa samband við Ticketmaster í síma 212 307 4100 og fá þar aðstoð við að komast á einhverja skemmtilega sýningu. Ef þú hefur gaman af því að sjá hvar fræga fólkið býr er gráupplagt að skella sér í skoðunarferð með Celebrity Tours en síminn þar er 212 683 4133. Þeir bjóða upp á tvær ferðir um austur- og vesturbæinn. Það kostar $15 að ganga um í tvo klukkutíma og láta benda sér á hvar Bruce Willis, Dustin Hoffman, Woody Allen, Robert Redford og allar hinar stjömum- ar búa. í vesturtúrnum er farið framhjá heimilum 104 stjarna en í austur- túmum 95. Ef maður tekur báða túrana hefur maður séð hvar 199 stjöm- ur búa í Nýju Jórvík. Lungu borgarinnar er Miðgarður. Þar er þótt ótrúlegt megi virðast nokkurs konar stórborgarþögn. Þangað er mjög notalegt að koma og láta hugann reika eða heimsækja minningarreit John Lennons, Strawberry Fields. Ekki langt þaðan er stutt í eitt af merkari söfnum veraldar, Metropolitan listasafnið. Það var árið 1626 sem hollenskir sæfarar keyptu landið Manhattan af indíánum af Algonquin ættbálki fyrir nokkrar glerperiur að núvirði 24 dollara eða 1.700 kr. Skírðu þeir staðinn Nýju Amsterdam. Fjörutíu árum síðar komu Bretar og settu upp þrælamarkað á Manhattan og gáfu þorp- inu nýtt nafn, New York. Fljótlega upp úr því efldist byggðin stórlega og árið 1785 varð New York höfuðborg Bandaríkjanna. Þeim titli hélt hún þó einungis í fimm ár eða meðan verið var að byggja upp Washington. Um síðustu aldamót var íbúatala N.Y. tæpar fjórar milljónir. Einni öld síðar búa á Stór-Nýju Jórvflcursvæðinu tæplega 20 milljónir manna sem koma alls staðar að af jarðarkringlunni. A fáurn stöðum í heiminum ef nokkrum, er saman komið eins fjölbreytt mannlíf og í þessari borg. Það endurspegla til dæmis veitingahúsin þar sem hægt er að fá allt sem hugurinn og maginn gimist. Sushi eins og það gerist best, afganskt lambakjöt eða ferskar grænmetisbökur frá vesturströndinni, nú eða gleyma sér bara yfir kokteil á 107. hæð í hæsta húsi borgarinnar, Heims- viðskiptamiðstöðinni á bar sem heitir því einfalda nafni, The Greatest Bar on Earth. Þangað upp þýtur hraðasta lyfta heims en það tekur innan við mínútu, nákvæmlega 58 sekúndur að fara frá jarðhæð og alla leið upp á þá 107. Ef þú hefur nauman tíma og langar að fá þér fín jakkaföt fyrir kvöldið, er ekki úr vegi að líta við hjá Sew Fast Sue Easy, nr. 147 West 57 Street. Þeir lofa að taka snið og sauma jakkaföt á þremur klukkutímum. Geri aðrir betur. Nýja Jórvík hefur breyst mikið á síðustu árum, glæpurn hefur fækkað mikið og Tímatorgið hefur verið gert upp. Það er ekki meiri hætta á að vera rændur þar en í hverri annarri stórborg. Ef maður er eitthvað óör- uggur að fara inn í hverfi sem maður þekkir ekki er hægt að leigja löggu. Leiðsögn alvöru NYPD lögregluþjóns kostar 27 dollara í fjóra klukku- tíma. Númerið hjá löggunni er 212 373 0502 fyrir áhugasaman. Lög- regluþjónninn gæti til dæmis veitt leiðsögn um borgina eða passað uppá pinklana sem maður verslar í risabúðunum eins og Nike Town, FAO Schwarts, Barnes ífe Noble bókabúðinni eða í risa nærfatabúðinni sem er við 34 East á 57. stræti og heitir Leyndarmál Viktoríu. Nýja Jórvík er staður þar sem auðvelt er að týnast í og týna sjálfum sér. Eftir nokkurra daga dvöl er samt sérstaklega gaman að koma heim. Páll Stefánsson er Ijósmyndari og hefur gaman af að standa á útsýnispalli á 86. hœÖ Empire State Building í 381 metra hœð og láta sig dreyma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.