Ský - 01.02.1999, Qupperneq 51
VALGEIR GUÐJÓNSSON
FÆR UPPREISN ÆRU
Islendingar eiga heimsmet í flestöllu sem þeir taka sér fyrir hendur og vita
svo sem vel af því líka. Þjóðarrembingur okkar er örugglega óskráð heimsmet eitt
útaf fyrir sig. Engin takmörk eru fyrir sjálfstrausti þjóðarinnar og sé einhver
keppni í aðsigi liggur alltaf ljóst fyrir að íslenskur sigur er í höfn.
Arið 1986, þegar íslenska þjóðin hafði fylgst með Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í á annan áratug og allan tímann undrast stórum hvers vegna af-
burða lagasmíðar Islendinga fengu ekki að vera með, skullu loks á landsmönnum
langþráð gleðitíðindi. Island var sem sagt velkomið í Eurovision-söngvakeppn-
ina.
Loksins, andvörpuðu landsmenn, því nú skyldi Evrópubúum sýnt í eitt skipti
fyrir öll hvernig Júróvisjónlög áttu að vera og í óbilandi sigurvissu var Gleðibank-
inn sendur út sem okkar framlag. Eina vandkvæðið við þessa kærkomnu þátttöku-
aðild var uggurinn sem menn báru í brjósti varðandi húsaskjól fyrir keppnina hér
heima eftir að Gleðibankinn væri búinn að vefja dómnefndum allra landa um
fingur sér. Síðan eru liðin þrettán ár og eftir frumraun Gleðibankans hafa Islend-
ingar í stolti sínu og stórkarlastælum þóst
fúlir ef framlög okkar hafa ekki haldið sig
við sextánda sætið. Páll Oskar gerði síðan
gott betur og kom okkur úr keppni með
framlagi sínu sem mörgum þótti stórgreiði við Island þar sem dómnefndin hefði
hvort eð er aldrei haft hundsvit á góðri tónlist. I tilefni endurkomu Islands í Júró-
visjónkeppnina í vor bauð Ský fimm valinkunnum tónlistaráhugamönnum uppá
kaffi, gos og Tópas á meðan þeir völdu besta íslenska Júróvisjónlagið af þeim tólf
lögum sem keppt hafa fyrir íslands hönd.
Umsjón: Þórdís Lilja Gunnarsdóttir
Dómnefndin: / Fríða Rós Valdimarsdóttir, hljómborðsleikari hinnar
sálugu pönkhljómsveitar Á túr. / Ólafur Páll Gunnarsson, konungur Popp- og
Rokklands á Rás 2. / Reynir Þór Sigurðsson, kennari og aðdáandi Júróvisjón-
keppninnar númer eitt á Islandi. / Brynja Gunnarsdóttir, smekkkona á tónlist
og eiginkona Bubba Morthens. / Jón Ólafsson, píanósnillingur úr Nýdanskri
og útsetjari með meiru.
Dómnefndarmenn gáfu besta laginu 12 stig því næstbesta 10 stig, því þriðja
besta 8 stig og svo koll af kolli. Nefndin kom sér ekki saman um eina einkunn
hverju lagi til handa, heldur gaf hver fulltrúi lögunum stig eftir sínu höfði.
Niðurstaðan birtist á næstu oþnu.
Sky 49