Ský - 01.02.1999, Blaðsíða 65
DALVÍK
LANDIÐ Þ I T T
EYJAFJÖRÐUR
Sá stærsti
Byggðasafn DaLvíkur Hvoli
A
Byggðasafni Dalvíkur Hvoli er sérstök og ákaf-
lega skemmtileg deild helguð Jóhanni Péturs-
syni Svarfdælingi, stærsta íslendingi fyrr og síð-
ar. Jóhann var 234 sentimetrar á hæð og var um
tíma hæsti maður heims.
Jóhann var uppi á árunum 1913 til 1984 og
reyndi margt um ævina. Hann ferðaðist um tíma
með sirkusum i Bandaríkjunum og lék í kvikmynd-
um vestanhafs. Fjölmargir athyglisverðir munir og
Ijósmyndir frá ferli hans eru á safninu. Fólk getur
til dæmis virt fyrir sér ýmsan skófatnað úr eigu
Jóhanns en hann notaði skó númer 84. Til að átta
sig betur á stærð hans býðst gestum að setjast í
sérsmíðaðan hægindastól Svarfdælingsins, og
máta eftirgerð hrings sem hann bar á baugfingri
svo eitthvað sé nefnt. Jóhann var sá eini úr stórum
hópi systkina sem varð óvenjulega hávaxinn. Hann
óx eðlilega fram til tólf ára aldurs en þá tók hann
að stækka svo hratt að hann varð að eyða löngum
tíma rúmliggjandi. Höfðu menn á orði að það
heyrðist braka í rúminu þegar tognaði á því undan
vexti piltsins. Eftir lát hans kom í Ijós kúla við
heiladingulinn, sem orsakaði þennan gríðarlega
vaxtarkipp. Er hún rakin til þess að Jóhann datt
mjög illa á hnakkann skömmu áður en hann tók
að stækka.
Byggðasafnið hefur einnig fjölmarga aðra
merkilega muni að geyma. Þar er stofa tileinkuð
Kristjáni Eldjárn forseta, Ijósmyndir sem sýna
afleiðingar jarðskjálftans mikla árið 1934, stærsti
uppstoppaði ísbjörn landsins og togvíraklippur
sem áhöfnin á Blika EA 12 náði af norsku strand-
gæslunni þegar hún reyndi að klippa á togvíra
skipsins vestur af Bjarnarey í júní árið 1994.
Jóhann Svarfdælingur á hátindi ferils síns í Vesturheimi.
Eyjafjörður er fyrirtaks staður til hvala-
skoðunar. Fyrirtækið Sjóferðir gerir út á
hvalaskoðunarmið frá Dalvík. Lagt er frá
smábátabryggjunni og siglt til Hríseyjar
og í ákveðnum ferðum einnig til Grenivík-
ur. Þaðan er stefnan tekin út Eyjafjörð.
Ekki er hægt að ábyrgjast að hvalir sjáist í
hverri ferð en líkurnar eru þó yfirgnæf-
andi, því undanfarin ár hafa þessi tröll
hafsins sést í um 94 prósentum ferða fyr-
irtækisins. Ef lítið verður vart við hvali
býðst gestum að grípa í sjóstöng. Boðið
er upp á kaffi og meðlæti í ferðinni sem
varir í tvo til þrjá klukkutíma.
Ský 63