Ský - 01.04.2000, Qupperneq 28
BRYNJA
hönnunarherberginu í annað og var því í rauninni í verklegu
námi í tólf ár.
Það er ósk mín og mér fyndust það forréttindi að fá að búa
hér á íslandi og hanna skartgripi með tengsl við alþjóðlegan
markað. Ég bið ekki um lítið, en hvað um það. Ég er bjartsýn og
mér finnst ég hafa nokkrar góðar hugmyndir í farteskinu sem ég
er viss um að eiga eftir að rata sína leið.
Annie Lennox og Dave Stewart, tvíeykið í Eurythmics, bera
armbandið í tónleikaferð sem nú stendur yfir og nefnist peace-
tour.net. Vigdís Finnbogadóttir hefur stutt mig í þessu og
Eskimo Models færði Claudiu Schiffer gripinn að gjöf þegar
hún kom til Islands.
Það kom þægilega á óvart að ná samstarfi við UNOAERRE,
sem er eitt elsta og virtasta skartgripafyrirtæki Ítalíu og er með
sérverslanir víða um heim.
Kaupmannahöfn. 1983 - Upphafið að ferlinum
Eftir fimm ára reynslu af sýningarstörfum á Islandi,
nám í tískuskóla Hönnu Frímanns, danstíma hjá eigin-
manni Hönnu, danskónginum sjálfum Heiðari Ástvalds,
þar sem hún lærði að dansa hliðar saman hliðar og
quickstep, Ijósmyndamöppu með listaverkum Páls Stef-
ánssonar Ijósmyndara af Brynju og stuðning og hvatn-
ingu ástvina í farteskinu, hélt Brynja til Danmerkur.
Hún var orðin átján ára, ætlaði sér stóra hluti og var
sannfærð um að hún væri að gera rétt.
Ég var búin að vera úti í þrjá mánuði og vera á forsíðum
dönsku blaðana þegar hinn kunni Ijósmyndari Gunnar Larsen
kom í heimsókn á heimaslóðimar. Ég vissi að hann yrði á Bella
Center svo ég fór í mitt fínasta púss, tók strætó út á Bella Center
og ætlaði mér bara að hitta á manninn. Ég kom fljótt auga á
hann, tók í höndina á honum og þá sagði hann að bragði:
„Komdu til Parísar,“ og ég svaraði strax já. Og fór til Parísar,
tók ódýrasta lestarfarið sem var í boði, þurfti þar af leiðandi að
skipta sex sinnum um lest á leiðinni og í öllum hamaganginum
týndi ég farangrinum mínum. Til Parísar kom ég því með tvær
hendur tómar, einu fötin voru þau sem ég var í, ég talaði ekki
orð í frönsku og takmarkað í ensku.
Brynja með Wei Jingsheng, einum þekktasta baráttumanni
fyrir mannréttindum í Kína, baksviðs á tónleikum sem Am-
nesty International stóð fyrir í New York síðastliðið haust.
Jingsheng var heiðursgestur en hann var gerður útlægur frá
heimalandi sínu eftir að hafa setið samtals í fjórtán ár í fang-
elsi vegna skoðana sinna.
Taó * o
Elding f &
Búdda n
Gnostík (^J n
Tirrii hlið m
Davíðsstjanui □ □
Völundarhús B
Eldur n Ð
Bænahjól □
Latneskur kross □ 0
Fótsþor fugls
Sól
Óm
Menomh
Grískur kross
Siífismi
Janismi
Þórsharnar
JingogJang
Grísk'kaþólskur
rétttrúnaðarkross
íslamskur hálfmúni
Friðarmerki
París. 1984
Þegar til Parísar kom fékk Brynja fyrst um sinn
inni hjá Gunnari Larsen, sem nú er látinn.
Fljótlega fann hún þó leiguíbúð og fór að leita
hófanna hjá tískuhúsum borgarinnar. Þess má
geta að á leið sinni um tískuheiminn hefur
Brynja náð tökum á fjórum tungumálum og er
veraldarvön með afbrigðum. Starfsferillinn hófst
hægt og bítandi, með mikilli vinnu og háieitum
markmiðum. Þegar Brynja fór að kynnast tísku-
bransanum betur varð henni Ijóst að hún vildi
alls ekki láta einhverja milliliði ráðskast með
sig. Hún samdi sjálf beint við umboðsmenn og
viðskiptavini og rak þannig sitt eigið fyrirtæki á
alþjóðavettvangi. Og þá fóru hjólin að snúast
fyrir alvöru.
Ég var átján ára þegar ég fór út. Ég myndi ekki ráð-
leggja stúlkum að fara út án góðs undirbúnings og
reynslu. Annars sýnast mér þessi mál vera í góðum far-
vegi hér heima.
Auðvitað er heilmikið af kvensömum körlum og
kynferðislegri áreitni í þessu starfi. En þannig er það
líka hjá öðrum stéttum.
Margir drauma minna hafa ræst. Ég hef alltaf verið
óhrædd við að eiga mér háleita drauma og þylja þá upp-
hátt, enda tel ég að hugsunarháttur og orð séu mikils
megnug. Veröldin er jú til staðar til þess að verða við
26
Ský