Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 22
Hún seldist I sömu viku og þá kýldi ég á
aö setja kollinn í framleiðslu fyrir almennan
markaö," segir Friörik og bætir því viö aö
hann hafi sótt áhrif í frægan legubekk Le
Corbusiers „Chaise lounge", og ruggustól
Sveins Kjarvals sem báöir voru einmitt
bólstraöir með kálfskinni.
Það sem gerir kolla Friðriks umfram allt
sérstaka er aö þeir eru meö rammíslensku
kálfskinni. Þá staðreynd má alls ekki
vanmeta þvl töluvert er um liðið frá því
sútun hross- og kýrhúða lagðist nánast
af í landinu, sem er mikil synd því litbrigði
hrossa og kúa landsins eru einstök á
heimsvísu.
Skinnin fær Friðrik frá síðasta geirfuglin-
um á þessu sviði, Lene Zachariassen, sem
býr að Dæli við Eyjafjörð. Og Friðrik segist
leggja mikið upp úr því að velja skinn með
hinum séríslensku einkennum.
„Ég fékk til dæmis ósk um daginn frá
manni sem vildi ekkert annaö en sægrá
skinn, sem er mjög sjaldgæft afbrigði. En
eftir mikla leit tókst að hafa upp á fáeinum
til að setja á tvo kolla.” Áhugasamir geta
nálgast eintak I Epal og kostar stykkið
65.000 krónur.
„Þegar smábörn sjá kollinn í fýrsta skipti
þá segja þau svo til undantekningarlaust
mu-mu um leið og þau klappa honum,
enda kom heldur ekkert annað nafn til
greina,” segir Friðrik Weisshappel um
fyrsta hönnunargrip sinn sem fer á
almennan markað. Það er óhætt að segja
að frumraun Friðriks hafi lukkast vel því
Hönnunarsafn íslands hefur þegar valið
kollinn I flokk safnmuna, innan við þremur
mánuðum eftir að fyrsta eintakið var tilbúið.
„Kollurinn fæddist nánast á sjö dögum I
upphafi sumars og mánuði eftir að hug-
myndin kviknaði var prótótýpan tilbúin.
FYR5T G. FREMST = MU MU
20 SKÝ Ljósmynd: FRIÐRIK ÖRN
SKÝ 21