Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 41

Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 41
gjarnan að hafa sambönd til að fá svona stöður. Áður en ég fór í prufuna var búið að hræða mig mikið með þessu. Fólk var meira að segja búið að segja við mann að það þýddi ekkert að reyna þetta nema ég svæfi hjá þessum eða þessum, eins og ég var reyndar búin að horfa upp á mínar kollegur og sumar vinkonur gera, án þess að blikka auga. En á endanum eru það alltaf áheyrendur sem hafa loka- orðið. Það er kannski hægt að fá einhver tækifæri með því að gera þessa hluti, en ef maður er ekki góður þá kemst maður ekki neitt. En hvað um það, ég fór að minnsta kosti galvösk í prufuna og söng tvær aríur fyrir stjórnanda og höfuðpaur flokksins, Corrado Abbati. Og þar sem í óperettum er líka talað, bað hann mig einnig um að flytja Ijóð því hann vildi heyra talröddina mína, þar sem það er ekk- ert sjálfgefið að söngvarar, jafnvel með risaraddir, hafi mikia talrödd eða góðan talanda. Ég hafði ekki undirbúið mig að þessu leyti og fór nánast á taugum. Til að losa mig út úr klemmunni ákvað ég að flytja Vissi D’Arte úr Tosca eins og Ijóð. Hann réð mig, en seinna sagði hann mér að hann hefði átt bágt með að halda niðri í sér hlátrinum því það var svo absúrd að heyra útlenskan söngvara tala þessa frægu aríu. Og auðvitað var það drepfyndið." Halla segist vera ákaflega þakklát Corrado því hann hafi verið fyrsti maðurinn sem virkilega treysti henni faglega á Ítalíu. „Áður en ég fór að syngja fyrir hann hafði ég að vísu unnið ýmsar keppnir og gengið vel við hin og þessi tækifæri, en hann veðjaði á mig þar sem það skipti máli, í alvöru sýningum sem fóru um allt land.” Frábært tækifæri Halla segir að það hafi verið frábært tækifæri fyrir sig að komast I flokk Corrados, en á hinn bóginn ITti sumir óperuunnendur niður á óperettur. Fyrir þá sem ekki eru innvígðir er rétt að útskýra að mun- urinn á óperu og óperettu er í grófum dráttum sá að í óperum er all- ur texti sunginn, en í óperettum er leikið og sungið á víxl. „Það hefur skemmt fyrir óperettuflutningi á Italíu að það hafa stundum staðið að þeim slæmir listamenn og úr orðið slæmar sýningar. Ástæðan fyrir því er sjálfsagt helst sú að óperettan er vinsælla form meðal almennings en óperan, ogfyrir bragði hafa alls kyns aðilar ætlað að hagnast á uppsetningu þeirra, en ekki vandað sig. ítali sem elskar óperutónlist snobbar því fyrir óperu. Ég skil mjög vel þá afstöðu því ég hef sjálf séð óperettusýningar sem hafa verið hræðilegar. En þegar vel er vandað til verks er þetta ákaflega skemmtilegt og krefjandi form. Staðreyndin er til dæmis sú að óper- ettur geta verið mun erfiðari en óperan að því leyti að þar þarf að halda kómískri spennu. Það þarf að binda saman söng og leik sem getur verið mjög snúið. Til þess að búa til góða óperettuuppfærslu þarf maður að vera með góða söngvara, góða leikara, góða kómíkera og góðan leikstjóra.” Og af þvl státar einmitt flokkur Corrados, enda nýtur hann mikilla vinsælda og fullt er á sýningar á öllum viðkomustöðum að sögn Höllu. „Og ég er að tala um leikhús sem taka um og yfir eitt þúsund manns. í hverri borg sýnum við kannski fimm sýningar og á þessum fimm dögum koma því um sex þúsund manns að sjá okkur.”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.