Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 74
HEIMSHORNAFLAKKARARNIR:
RÚSSÍBANARNIR
GULLREGNIÐ
„Það er kannski að færast smáró yfír okkur
með aldrinum, það er koma smátregi í okkur,
en annars eru engin alvarleg frávik frá fyrri
plötum. Það eru þrjú ár síðan síðasta plata
kom út, við tókum því aðeins rólega þannig
að það er gaman að koma saman aftur.”
EINAR KRISTJÁN EINARSSON, gítarleikari.
'n og tyþór Gunnarsson
Lennart Ginman.Siguröur Ff
img:
. 1
DJASSMENN:
TRÍÓ SIGURÐAR FLOSASONAR
DJÚPIÐ ... Sjálfstætt framhald Himnastigans sem kom út 1999.
„Hvernig fylgja menn eftir svo ágætum diski og Himnastiginn
var? Hvers vegna fylgja menn honum eftir? Það er vegna þess
að ýmislegt er enn ósagt. Sem svarar eiginlega fyrri spurning-
unni; hafi tónlistin á fyrri diskinum verið himnesk á einhvern
máta þá er hún djúp hér í öllum skilningi - barítónninn hiö ráö-
andi hljóðfæri, tónsmiðarnar innhverfari og margar hverjar
minna þekktar en sumt af fyrri diskinum að minnsta kosti.
Kannski eru tilfinningarnar sem kvikna með hlustanda líka dýpri
nú, angurværari, jafnvel dekkri. Eins og títt er um standarda er
margt hér tengt ástinni en hér eru undirheimar þeirrar
margræðu kenndar kannaðir - „dýpi míns brjósts veit ég aldrei
allt” orti Einar Benediktsson í Einræðum Starkaðar, einu magn-
aðasta ástakvæði íslensku: hér gefst hlustanda færi á að
kanna þau djúp með sjálfum sér.” guðmundur andri thorsson.,
rithöfundur, í pistli á umslagi geisladisksins.
VÍKINGARNIR: JAGÚAR
GET THE FUNK OUT
Næstu tólf mánuöi ætla Jagúarmenn að
skipta aðeins um gtr og reyna markvisst aö
koma sjálfum sér á framfæri erlendis. Eftir
þrjú góö ár á islandi og tvær plötur telja þeir
að það sé kominn tími til að leita á önnur
mið. Börkur Hrafn Birgisson, gítarleikari sveit-
arinnar, segir að þeir hyggist aðallega stefna
á meginland Evrópu, Frakkland, ítaltu og
Þýskaland, þar sem er stór markaður fyrir þá
tegund tónlistar sem þeir flytja.