Ský - 01.10.2001, Blaðsíða 40
„Aður en ég fór í prufuna var búið að hræða mig mikið með þessu. Fólk var meira að segja búið
að segja við mann að það þýddi ekkert að reyna þetta nema ég svæfi hjá þessum eða þessum.
T, nefnilega fótboltaþulur í einum af aðalknattspyrnuþáttum Ítalíu á
ríkisstöðinni RAI 3.
„Já, það kom þannig til að einn sunnudag bauð vinur minn mér að
koma með að horfa á þennan þátt, sem er tekinn upp fyrir framan
áhorfendur í sal. Eftir þáttinn töluðu stjórnendur hans svo við mig og
spurðu hvort ég væri ekki til í að vinna við þáttinn."
Halla segist ekkert hafa vitað um fótbolta en hún ákvað að slá til,
lagðist yfir fótboltabækur og blöð til þess að komast inní hlutina.
„Ég vissi til dæmis ekki hvað hornspyrna var á Ttölsku áður en þetta
kom upp. En reyndar krafðist hlutverk mitt ekki sérþekkingar á fín-
ustu blæbrigðum knattspyrnunnar.”
Halla fór síðan um hverja helgi í stúdíó RAI 3 í Mílanó og var full-
trúi Parma-liðsins í þættinum, sem er nokkurs konar blanda af
skemmtidagskrá og fótboita. „Það var fylgst með gangi allra leikja
og þegar eitthvað gerðist í leikjum Parma var klippt til mín og ég lýsti
þvT sem hafði gerst og sagði mitt álit á því. Stundum fór ég kolvit-
laust með en það var hluti af skemmtuninni. í kjölfarið á þessu var
mér boðinn knattspyrnuþáttur á lókalsjónvarpsstöðinni hér í Parma
og þar var ég annar umsjónarmannanna. Þetta snerist svona um að
vera skemmtileg og sæt á öxlinni á aðalstjórnandanum, sem er karl-
maður og veit auðvitað allt um fótbolta. Reyndar tók ég líka viðtöl
við leikmenn Parma-liðsins. Þetta var mjöggaman.”
Þeir sem hafa fylgst eitthvað með ítölsku sjónvarpi kannast ágæt-
lega við þá samsetningu að sjónvarpsmaðurinn sé með fallega
konu, jafnvel í stuttu pilsi og flegnum toppi, sér til halds og trausts.
„Það er alveg rétt, en ég passa ekki alveg inn í þann ramma því
ég er ekki með blásin brjóst og bossa eins og þær. Ég hafði minn
tón og var ekki að keppa við þær,” segir Halla og skellihlær. „Ann-
ars sátu svona dömur við hliðina á mér í þættinum í RAI og eftir að
útsendingu lauk fóru þær af stað að leggja snörur sínar fyrir hina og
þessa gæja og athuga hvort þær gætu ekki fengið meiri vinnu í sjón-
varpinu. Og það er allt gert. Ég geri það ekki fyrir sönginn og hvað
þá fyrir fótboltaþætti,” segir Halla og hlær ennþá meira.
150 sýningar á 6 mánuðum
Fyrir þremur árum lagði Halla fótboltastússið á hilluna enda var hún
þá orðinn meðlimur í einum fremsta óperettuflokki Ítalíu. Og álagið
þar er engu minna en á atvinnuknattspyrnumanni í toppliði sem spil-
ar bæði í deild og Evrópukeppni. Fyrstu sex mánuðina T flokknum tók
Halla þátt í 150 sýningum um alla ítalTu. „Ég þekki Ítalíu orðið eins
og eldhúsið mitt,” segir hún.
Óperettuflokkurinn gerir út frá glæsilegu klassísku leikhúsi,
Teatro Valli í Reggio, nágrannaborg Parma. Venjan er sú að frumsýna
þar og eftir nokkrar sýningar er haldið í sýningarferð um landið.
Þetta er mikil útgerð, 42 listamenn eru í hópnum, söngvarar, leikar-
ar, dansarar og hljóðfæraleikarar, auk tæknimanna, aðstoðarfólks
og búningadeildar.
Halla segir að hún hafi fengið stöðu I flokknum eftir hinni hefð-
bundnu leið, eftir söngprufu.
„Nema hvað hefðin er venjulega sú hér á Ítalíu að maður þarf
38 SKÝ HALLA MARGRÉT