Jólaklukkur - 01.12.1947, Qupperneq 21
J Ö' L'A K L U K K U R
19
Þór verið formaður þess, og það má með
sanni segja, að hún hefur oft lagt mikið á
sig, ekki sízt á síðari árum eftir að heilsa
hennar fór að bila. Félagið hefur aflað sér
tekna með því að hafa útsölu á ýmsu, er
konurnar hafa sjálfar unnið að og gefið
að öllu leyti, að undanteknu því, að ein-
staka vinur hefur lagt fram gjafir, peninga
eða annað, sem að gagni hefur komið fyr-
ir starfið.
Fyrir allmörgum árum hófust konurnar
handa og létu byggja stórt og vandað sam-
komuhús. Er samkomusalurinn svo fagur,
að flestum verður á að staðnæmast í lotn-
ingu. Húsið hlaut nafnið Zion, og stendur
við Hólabraut. Það var vígt 10. des. 1933.
Ymsir góðir vinir lögðu hönd að verki við
byggingu hússins, og vafalaust bíða þeirra
ríkuleg laun, því að mikil þörf var á að
koma upp slíku húsi, því að kristniboðinu
verður því betur borgið sem fleiri mynda
samtök um að styðja það, og vitanlega
þurfa félögin að eiga sitt eigið samkomu-
hús, sem stendur opið hverjum, sem vill
koma og eiga dýrðlega stund frammi fyrir
augliti Drottins. Að vísu getur einstakling-
urinn leitað hans heima hjá sér eða hvar
sem hann er staddur, en hús, sem er sér-
staklega helgað málefni Drottins, verður
hvíldar- og griðastaður um leið.
Þær hafa víst orðið varar við það, kon-
urnar, sem hafa starfað í félaginu frá byrj-
un, að oft hefur andað köldu í garð þess,
og ýmsar hindranir hafa orðið á veginum,
en þeim hefur alltaf verið rutt úr vegi, og
það sannar betur en nokkuð annað, að
starfið er Drottins, hvað sem mennirnir
segja.
ÖNNUR TRÚARLEG
STARFSEMI.
Á Akureyri hefur -Hvítasunnusöfnuður-
inn starfað í nokkur undanfarin ár. Þá er
kristilegt starf á Sjónarhæð, og veitir því
forstöðu frá upphafi brezki ræðismaðurinn,
Gook, og hefur Sæmundur .Jóhannesson,
kennari, aðstoðað hann nú um margra ára
skeið. Hjálpræðisherinn hefur starfað á
Akureyri um áratugi og staðið af sér alla
storma þar sem annars staðar, með þraut-
seigju og brennandi trú á framgangi mál-
efnisins.
Þegar ég hefi gengið um bæinn og séð
hina fögru trjágarða, sem verða fegurri með
hverju árinu, sem líður, verður mér á að
óska þess, að hinn andlegi gróður mætti
þróast svo vel sem birkið og reyniviðurinn,
því að hver verður ekki hugfanginn, sem
gengur um listigarðinn og gróðrarstöðina
á fögrum sumardegi og tevgar að sér ilm-
inn af öllum þeim yndislega gróðri, blóm-
um og trjám, sem breiða sig móti bláum,
sólþrungnum himninum. Hvers vegna leita
mennirnir í skuggann, flýja lífið sjálft í
stað þess að lofa hinni eilífu sól að bera
birtu inn í lífið, svo að það megi bera ávöxt
um tíma og eilífð? Ægileiki skammdegis-
skugganna hverfur fyrir birtunni að ofan.
Betlehemsstjarnan fer fyrir þeim og vísar
þeim veginn.