Jólaklukkur - 01.12.1947, Blaðsíða 24
22
JÖLAKLUKKUR
HULDA HÖYDAL:
Jesús Kristur er Drottinn
Alþjóðamót kristins æskulýðs (World
Conference of Christian Youth) var haldið
í júlí í sumar, og er það hið annað í röð-
inni. Hið fyrra var haldið í Amsterdam
1939. Félög þau, sem stóðu að móti þessu,
voru alþjóðasarntök K. F. U. M. og K. F.
U. K., alþjóðasamtök kristilegu stúdenta-
lireyfingarinnar, alþjóðaráð kirkna og al-
þjóðasamtök sunnudagaskólanna. Mót þetta
var haldið í Osló dagana 22.—31. júlí s.l.
Fyrir hádegi 22. júlí lá leiðin til „Turn-
hallen“ í St. Ólafsgötu, sem var aðalaðset-
urstaður mótsins, en þar hafði verið kom-
ið fyrir afgreiðslu, skrifstofu, pósthúsi,
banka, sölubúð ýmissa minjagripa, kaffi-
stofu, lestrarstofu o. fl. Á afgreiðslunni þar
voru sýnd skilríki frá því félagi, sem við-
komandi var sendur frá, og gegn þeim skil-
ríkjum var hverjum og einum afhent stórt
• Það, sem boðað var fyrst fátækum hirð-
um á völlunum fyrir utan einn hinna ó-
glæsilegu bæja Gyðingalands á dimmri
nóttu, er nú orðið boðskapur, sem hljómar
á óteljandi málum, meðal margra þjóða
og kynflokka, og í dag hljómar lofsöngur
englanna frá mannavörum og mannahjört-
um meðal hvítra manna, svartra og gulra:
„Yður er í dag frelsari fæddur".
„Dýrð sé Guði í upphæðum!"
Krisiine Skjeslien.
umslag með alls konar spjöldum og les-
máli ásamt merki, sem átti að auðkenna
hvern þátttakanda. En spjöldin voru að-
gangskort að samkomum mótsins, máltíð-
um og gistihúsi eða verustað, og svo fylgdi
stór bók með dagskrá mótsins o. fl.
Kl. 5 þennan sama dag var mótið sett
í „Fíladelfíu“, sem er við sömu götu og
Turnhallen. Spjöldum með nöfnum hvers
lands var komið fyrir á milli bekkjanna,
þar sem þáttakendum var ætlað að sitja.
Við íslendingarnir leituðum uppi nafn okk-
ar lands og settumst þar, en við vorum
aðeins tvær stúlkur frá K. F. U. K., Agnes
Steinadóttir og ég. Síðan bættist svo við í
hópinn fulltrúi frá íslenzku kirkiunni, síra
Jón Þorvarðarson frá Vík í Mýrdal.
Beint á móti okkur blasti við kjörorð
mótsins: „Jesús Kristur er Drottinn“. Var
það ritað á fjórum tungumálum, ensku,
þýzku, frönsku og norsku. Undir þessu
merki, „Jesús Kristur er Drottinn“, voru
samansafnaðir 1500 fulltrúar frá 70 lönd-
um. Fólki af ólíkum þjóðum og tungum,
sem áttu samt eitt sameiginlegt, — Jesúm
Krist sem Drottin og Herra.
Á upphækkuðum pöllum andspænis á-
heyrendunum hljómaði hinn þróttmikli
söngur kórsins með undirleik bæði á orgel
og flygel. En kór þessi var ekki bara frá
einu landi, heldur samsettur af fólki frá
fjölda landa.
Norski presturinn, forseti mótsins, síra
Alex Johnson, setti mótið með bæn og