Jólaklukkur - 01.12.1958, Blaðsíða 6

Jólaklukkur - 01.12.1958, Blaðsíða 6
Víxlsöng'iir. VÍXLSÖNGUR tíðkaðist mjöff meðal kristinna manna í Suður-Eþópíu. Ilann mælist einnig vel fyrir í Konso, en er þó ekki mjög algen^ur þar. Algengastur mun hann vera í Wollamo, stóru héraði austanvert við Gamo-Gofa-fylki, en þar byriaði vakningin, sem nú breiðir siff yfir alla Suður-Eþíópíu. Eftirfarandi söngvar eru frá WoIIamo. Forsöngvarinn býr til textann jafn- óðum, og fjallar hann um hvcrsdagsleg vandamál trúar- lífsins í fyrsta söngnum er viðlagið: „Þú hefur stiga, sem nær til himins." Forsöngvarinn: „Verði þér kastað í fangelsi og þú bundinn í járn, gleymdu þá ekki.... Söfnuðurinn: ,,....að þú hefur stiga, sem nær til himins“. F.: „Ef erfiðlega gengur og þér finnst bæði Guð og menn hafa yfirgefið þig. ... “ S.: ,,....Þú hefur stiga, sem nær til himins". F.: „Er syndin pínir þig og himininn virð- ist svo fjarri, mundu. . . . “ S.: ,,....að þú hefur stiga, sem nær til himins". F.: „Er sjúkdómar binda þig við skinnið á jörðinni og dauðinn nálgast, mundu“ S.: ,,....að þú hefur stiga, sem nær til himins“. F.: „Jesús er siginn, sem nær til himins. Gleymdu því ekki.“ S.: ,,....Þú hefur stiga, sem nær til himins.“ Annar söngur er í tveim þáttum. Viðlag fyrsta þáttar er: „Gleymir Guð þér ekki“, en í seinni þættinum: „Gleymdu þá ekki Guði". Forsöngvarinn: „Verði þér kastað í fang- elsi og sértu einn og yfirgefinn." Söfnuðurinn: „Gleymir Guð þér ekki“. F.: „Eigir þú erfitt heima fyrir, vilji konan þín ekki fylgja þér á lífsins vegi.“ S.: „Gleymir Guð þér ekki.“ 4 F.: „Hafi uppskeran brugðist, kálfurinn dáið, mjólkurkýrin veikst, engisprett- urnar eyðilagt akurinn..... S.: „Gleymir Guð þér ekki.“ SEINNI ÞÁTTUR: Fors.: „Hafi hamingjan sótt þig heim, hafi konan fært þér son“. Söfn.: „Gleymdu þá ekki Guði.“ F.: „Hafi Guð sent regn og gefið ökrunum mikið sæði“. S.: „Gleymdu þá ekki Guði.“ F.: „Hafir þú hlotið bænheyrslu, hafi ein- hver sloppið úr fangelsi." S.: „Gleymdu þá ekki Guði.“ Stundum er efni trúarjátningarinnar tekið fyrir, og söfnuðurinn svarar þá: „Lofaður sé Guð". F.: „Allt hefur hann skapað, menn og dýr, regnið, sólina og aksið, sem gefur brauð.“ S.: „Lofaður sé Guð“. F.: „Hann sendi son sinn til jarðar, og hann fæddist í fjárhúsi". S.: „Lofaður sé Guð“. F.: „Hann gekk um og græddi og hjálpaði öllum." S.: „Lofaður sé Guð“. F.: „Hann var negldur við krossinn í stað syndara". S.: „Lofaður sé Guð“. F.: „Hann sigraði Satan og reis upp sem sigurvegari". S.: „Lofaður sé Guð". Og forsöngvarinn heldur áfram: F.: „Hann situr í hásæti Guðs, sem vernd- ari okkar". F.: „Hann hefur sent okkur Anda sinn“. F.: „Þú heyrir rödd hans í brjósti þér“. F.: „Hann kemur aftur til þess að dæma og kalla börn sín til sín." Og í hvert skipti svarar söfnuðurinn: — „Lofaður sé Guð“. JÓLAKLUKKUR

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.