Jólaklukkur - 01.12.1958, Blaðsíða 10

Jólaklukkur - 01.12.1958, Blaðsíða 10
Nazaret. Þar ólst Jesús upp. Þar hefur verið miðstöð kristinna manna síðan á 4. öld. Ibúar eru nú 23 þúsund. — Skammt er þaðan til Tabor. eru búsettir í landinu. Klaustur og kirkjuhús gnæfa yfir gamlar bygg- ingar Araba. — Þær eru hlaðnar úr grjóti og með flötu þaki líkt og tíðkaðist á tímum Jesú. Atvinnuvegur bæjar- búa er þeim heldur engin hvatning til nýrra framkvæmda. — Þeir hafa allan ársins hring tekjur af ferða- mönnum, sem þangað streyma hvaðanæva að. En þeim leikur eink- um hugur á að sjá það, sem er gamalt og sérkennilegt, og er því haldið á lofti. Aðalat- vinnuvegur bæjarbúa að veita þeim leiðsögn og selja þeim ,greiða, minjagripi og helgimuni. „En á sétta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nazaret, til meyj- ar. ... er hét María“. — Lúk. 1, 26. Hér, í Nazaret, gerðist forsaga sjálfs jóla- guðspjallsins. — Hér áttu þau heima, Jósef og María. Boðunarkirkjan, stórhýsi mikið, en ekki að sama skapi fagurt, stendur þar, sem menn halda að engillinn hafi birzt Maríu og boðað henni: ,,....þú munt. þunguð verða og fæða son. Og þú skalt láta hann heita Jesúm. Hann mun verða mikill og verða kallaður sonur hins hæsta“. — I helli undir altari kirkjunnar er marmara- hella með álitrun, sem merkir: „Hér varð Orið hold.“ Eftir flóttann til Egyptalands, sem líkur benda til, að hafi staðið yfir í tvö ár, settust 8 þau aftur að í Nazaret. Og þar ólst Jesús upp. Guðspjöllin eru þögul um bernskuár hans og hefur það orðið guðhræddum mönnum freisting til að fylla í þá eyðu, skálda helgisagnir, sem gerast vitanlega í Nazaret. Það eitt er vitað með fullri vissu, að farið var með hann rúmlega mánaðar gamlan til Jerúsalem, „til að færa hann Drottni". Og einnig það, sem Símeon og Anna Fanúelsdóttir sögðu um barnið og móður þess. Frásögninni um allt þetta lýkur Lúkas á þessa leið: „En sveinninn óx og styrktist, fullur vizku, og náð Guðs var yfir honum.“ Loks segir Lúkas frá því, að þegar Jesús var orðinn tólf ára hafi Jósef og María farið „upp til Jerúsalem eftir hátíðasiðnum". Það ferðalag varð viðburðaríkara en þau hafði dreymt um. Fyrstu kynni lærimeist- aranna í Jerúsalem af honum hafa óefað orðið þeim ógleymanleg og rifjazt upp fyrir þeim síðar. Fjölskyldan sneri heim JÓLAKLUKKUR

x

Jólaklukkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.