Jólaklukkur - 01.12.1958, Blaðsíða 17
sinna Þangbrandi presti, þegar engir aðrir
vildu við honum taka. Þegar Hallur hafði
tekið kristna trú, var hann ásamt heimafólki
sínu skírður í ánni. Síðan heitir hún
Þvottá og bærinn sömuleiðis Enn mótar
fyrir tjaldstæði Þangbrands í túnjaðrinum.
Útsýni er þarna alls staðar fagurt yfir eyj-
ar, hólma og sker; stærsta eyjan er Papey,
sem er fjórar mílur frá ströndinni. Við nálg-
uðumst nú Lónsheiði, sem þykir nokkuð
erfið yfirferðar, en allt gekk þetta þó slysa-
laust þrátt fyrir lasleika bifreiðarinnar.
Verst var, að þoka mikil lagðist yfir og
skyggði á allt útsýni; elti þokan okkur það,
sem eftir var heiðarinnar.
Til Hafnar í Hornafirði var komið kl.
tvö um nóttina; er óhætt að segja, að mann-
skapurinn hafi þá verið bæði syfjaður og
þreyttur. Hornafjörður var takmark okk-
ar í för þessari, og nú hugðumst við hvíla
okkur þar einn dag. Fengum við ágætar,
gamlar verbúðir til að dveljast í þar á staðn-
um. — Daginn, sem við dvöldum þarna um
kyrrt, skruppum við upp að rótum Hof-
fellsjökuls, sem er skriðjökull úr Vatna-
jökli. Hornafjörður er' blómleg og aðlað-
andi sveit; fjallasýn er þar mikil og tignar-
leg; setja skriðjöklarnir frá Vatnajökli þar
einna mestan svip á.
Um kvöldið var gert við bifreiðina; hafði
nýr fjaðraklossi verið sendur með flugvél
frá Reykjavík.
Morguninn eftir kvöddum við þennan
fagra stað og héldum sömu leið til baka;
var komið við á Djúpavogi og þorpið
skoðað. Síðan fórum við í einum áfanga að
Arnhólsstöðum í Skriðdal. Bóndinn á Arn-
hólsstöðum, Einar Pétursson, útvegaði okk
ur félagsheimili þar á staðnum; greiddi
Einar götu okkar af mikilli vinsemd og
hjálpsemi; ekki fengum við hann til að
taka við neinni greiðslu fyrir félagsheimilið,
og ekki mátti hann heyra nefnt, að við borg-
JÓI.AKLUKKUR
Hólar í Hjaltadal.
uðum honurn nokkra lítra af mjólk, sem
hann lét okkur hafa.
Næsta dag, sem var sunnudagur, höfðum
við stutta guðsþjónustustund í fögrum
hvammi skammt frá félagsheimilinu í blíð-
skaparveðri.
Frá Arnhólsstöðum héldum við til Egils-
staða og yfir Lagarfljót, síðan niður með
því og að Hengifossi. Við þurftum að ganga
góðan spöl frá veginum og inn í gljúfrið,
sem fossinn er í; fellur Hengifoss þar af
efstu brún ofan í ketil einn, æði sérkenni-
legan; hamraskálin er byggð upp af belt-
um í ýmsum litum. Var síðan farið að
Skjöldólfsstöðum í Jökuldal; höfðum við
næturstað í barnaskólanum þar.
Daginn eftir fórum við að Mývatni; á leið-
inni skoðuðum við brennisteinshverina í
Námaskarði. Þegar að Mývatni kom, fór-
um við í Dimmuborgir og skoðuðum þess-
ar sérkennilegu hraundrangaborgir. Seint
um kveldið var komið til Akureyrar.
Morguninn eftir lögðum við leið okkar
til Skagafjarðar, héldum við fyrst að sögu-
frægasta stað héraðsins, Hólum í Hjaltadal.
Bærinn stendur hátt, sléttar engjar hið
neðra, en himingnæfandi hamrabrúnir
fjallsins að ofan. Miklar byggingar með
hvíta veggi og rauð þök í hágrænu, hall-
andi túni, og hinn gnæfandi bakgrunnar
15