Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Blaðsíða 7

Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Blaðsíða 7
ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ l'ÓRS 7 ;in þátttöku fjöldans. Á meðan fjöldinn af meðlimum íþriktafélaganna telur sig félags- bundna, ef þeir aðeins mæta tii þess að skemmta sér á árshátíðum félaganna, er ekki von á góðu. í Reykjavík, þar sem í- þróttirnar eru komnar iengst hér á landi, er enginn talinn meðlimur nema hann greiði tilskilið félagsgjald. Og er reynt að láta fé- iagsgjöldin standa straum af kennslukostn- aði félaganna. Öll íþróttafélög innan í. S. í. verða að greiða ákveðið gjald fyrir hvern félagsmann. Borgi ekki Iiver meðlimur í íþróttafélagi félagsgjald sitt, er hann þess vegna byrði á l'élagi sínu. Félagið hefur þá skyldur gagnvart meðlimum sínurn, en meðlimirnir engar gagnvart félagi sínu. Með slíku háttarlagi er málunum snúið öf- ugt. Hér eru meðlimir íþróttafélaganna svo margir, að með 10—15 kr. árgjaldi væri hægt að standa straum af helztu útgjalda- liðum þeirra. Styrkveitingar frá bæ eða öðrum gætu þá runnið óskertar til vallar- eða húsbyggingar. Að borga árgjald sitt er það minnsta, sem nokkur getur gert fyrir félag sitt. Séu all- ir samtaka um það, er um leið lagður til- tölulega l'astur grundvöllur að félagsstarf- seminni. Á síðustu árum hala Iramfarir íþrótta- manna ;i nokkrum stöðum á landinu verió stórstígar. Liggja aðallega til þess tvær or- sakir, þ. e. betri skilyrði til íþróttaiðkana og meiri skilningur ;i nauðsyn þess að æfa. bað hefur margsýnt sig, að fullkominn ár- angur fæst ekki nema með rnargra ára þjáll- un og flestir hætta áður en þeir geta vænzt mesta árangurs. Það er ekki úr vegi að at- huga, hvernig allur þorri íþróttamanna hér stundar ælingar. Er þá t. d. hægt að líta ;i vormót okkar hér í sumar. Þátttakendur voru mjög fáir og flestir þeirra höfðu ekk- ert æft. Ef rétt hefði A'erið ættu keppend- urnir að hafa byrjað inniæfingarn í nót- ember og haldið þeim áfram allan veturinn og svo byrjað útiæfingar með vorimt. Þrátt fvrir svona ófullnægjandi æfingar, náðist Eitt af fyrs/u II. flokks liðiun Þórs: Efst frá vinstri: Guð- laugur Gislas., Árni M. Jónsson, Hinrik Jóns- son, Gisli Pálsson, Jó 1 Úlafsson. Miðröð: Á.- mundur Friðriliss., Ha\- steinn Snorrason, Þo,- steinn Guðjónsson. Fremsta röð: Þórarin 1 Bernótusson, Ásmundu r Steinsson, Óskar Valdi- niarsson.

x

Þjóðhátíðarblað Þórs

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðhátíðarblað Þórs
https://timarit.is/publication/1833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.