Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Blaðsíða 14

Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Blaðsíða 14
4 ÞJÓÐHÁTÍÐARBI . VI) ÞÓRS / húrni nœturinnar Þ jóðhátíðardagur. í dag hcf ég verið inni í Herjólfsdal, innan um ys hátíðarinnar, gleði hennar og glaum. F.g Itef gengið urn hátíðarsvæðið í sama tilgangi og með sörnu hugsanir og flestir aðrir, að sýna mig og sjá aðra, skemmta mér og taka eftir því, sem fyrir augun ber. Eg hef séð feimnislega stráka og stelpur gjóta hornauga hvort til- annars, en Jrau upphurðarmestu hafa geng- ið saman tvö og tvö upp í brekkur og inn í Kaplagjótu. ()g ég hef séð hvernig Jrau hafa skipzt. á blikkum og brosi, en — skylcli ég annars nokkurn tíma komast að Jrví, hvernig þau viðskipti enda? Og nú er komið kvöld. Það er tekið að dimma. Eg er aftur kominn upp í bílinn á leið inn í Herjólfsdal. Eg hef borgað ið garnall siður, að fólk eða börn, er komu úr berjamó, af Torfmýri eða hrauninu, skildi eftir nokkur ber, hver maður eigi færri en 3, í laut í steini við Dalveginn, handa huldufólkinu, átti þá aldrei ber að bresta í Hrauninu meðan Jressi siður héld- ist. Framan undir Lághánni er talið að staðið hafi bær Orms Iiins auðga Herjólfs- sonar, landnámsmanns. Sáust þar fornar tættur til skamms tíma. Inn í Herjólfsdal var ruddur vegur fyrir um 100 árurn, og um þann veg var ekið fyrsta vagninum, sem til Eyjanna kom um 1850. Margt er að sjá í Herjólfsdal og umhverfi lians, ekki einasta fyrir almenna dauðlega menn, er gleðjast við náttúrufegurð Dals- ins, þangað geta og fornfræðingar, jarð- og náttúrufræðingar sitt af hverju sótt úr forn- leiía- og söguminjum og dást að jarðar- gróðri ofan á alla Jrá ánægju, er þeir semj að Þjóðhátíðinni standa, sjá um að veita gest- um sínum. V. mína krónu fyrir farið um leið og ég sett- ist upp í bílinn, svo að ég þarf ekki að hafa áhyggjur út af Jrví á leiðinni, að ég þurfi að létta á pyngju minni, þegar ég kem inn í Dal. Vhð erum mörg saman í bílnum, svo mörg, að \ ið komumst tæplegá fyrir. Eg treð mér þó með gætni fremst fram í bí 1 - inn og læt mig falla niður á bekkinn, á milli tveggja stúlkna. Það er að vísu nökk- uð þröngt, en slík þrengsli eru bara þægi- leg, a. m. k. finnst mér Jrað. Fyrir \ it mér Ieggur þægilegan ilm af er- lendum snyrtivörum og ilmvötnum úr hári og vöngum stúlknanna, en ég er ekki svo mikill snyrtivörusérfræðingur, að ég geti fundið það á ihninum, hvort tegund- in heitir Ponds eða Max Factor, eða ein- hverju öðru nafni. En l'rá strákunum, sem sitja á móti okk- ur, leggur þefinn af spönskum Jrrúguvín- um, eða kannske bara af íslenzkum „svarta- dauða". A leiðinni fær gleði þessa æskufólks út- rás í söngvum, eins og t. d. ..Hittumst bræður í Fíerjólfsdal". Bílarnir þjóta ýmist „í, bæinn“ eða „í Dalinn“, og allsstaðar er sama sagan: Það er sungið við raust svo að undir tekur í Fiskhellum. Bjargfuglinn fær líklega lítinn svefnfrið í nótt. Það er komið fram á mið- nótt. Við komum í Dalinn, þegar eldtung- urnar frá varðeldum skátanna téygja klær sínar hátt. í loft upp og lýsa upp mann- fjöldann, sem stenclur í kring um svæðið, þar sem skátarnir flytja skennutiatriði sín. Og jtað er bvrjað að dansa á danspöll- tinum. Það er bezt að ég fylgist með. Á öðrum pallinum iðar gamla fólkið í endalausri hringiðu. Gráhærðir og grá- skeggjaðir karlar snúast með dömur sínar, svo að peysufatapilsin flaksast til í allar átt- ir. Gleði lífsins virðist engu síður hafa náð

x

Þjóðhátíðarblað Þórs

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðhátíðarblað Þórs
https://timarit.is/publication/1833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.