Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Page 16
ÞJÓÐHÁTÍÐARBI,AÐ ÞÓRS
16
ur. Allir eru þeir lietjur í þessu lííi, eða
hafa a. m. k. verið það. En aldrei nær sögu-
hetjan að lirífa svq hugi áheyrendanna, að
þeir gleymi að skála fyrir henni.
Glösin er fyllt og tæmd, eitt eftir annað,
og drukkin skál alls þess, sem mörinum
dettur í hug, og svo er sungið með hárri
röddu á milli. Já, — „í tjöldunum finnst
landalykt, líklega er einhver sætur“.
En fyrst að Bakkus hefur tekið völdin
\ ið Reglubraut, skyldi þá ekki Amor ltafa
einhvers staðar völd líka?
Og ég leita fyrir mér. Við Ástabraut
finn ég valdasvæði lians.
Ejöldin við þessa götu eru ekki frekar
auð en við aðrar götur, en hér er hljóðara
og kyrrlátara fólk. Hér er talað í hálfum
hljóðum, eða e. t. v. er liara ekkert talað;
munnarnir hafa kannske eitthvað annað
að gera í nótt.
Á borðinu í einu tjaldinu stendur lítið
kerti, það er að brenna út. Myrkrið er að
taka völdin, með sinni eilífu kyrrð og l'rið.
En bjarminn frá kertinu er ]>('> nógu mik-
ill til þess, að frá strák og stelpu, sem sitja
þar inni á dívan, kastast skuggi á tjald-
súðina. Eg sé, hvar þau vefja hvort annað
örmum og munnarnir mætast í löngum,
innilegum kossi. Svo fjarlægjast þeir aftur.
Þetta hlaut að vera unaðsleg stund, því að
í skugganum á tjaldsúðinni sé ég að and-
lit þeirra ljóma í brosi. Já — „konrdti vina
kæra, og kysstu mig“.
Svo geng ég upp í brekku. Söngurinn
sem þar var fvrir í kvöld er ntt óðum að
hljóðna.
Eg sest Jrar niður og læt hugann reika
til þeirra margbrey.ttu skemmtana, sem
unga fólkið unir sér við í nótt. Og ég reyni
að gera mér grein fyrir því, hvorir eigi
stærri fylgjendahóp hér inni í Herjólfsdal,
Amor eða Bakkus.
En það er erfitt að gera sér grein fvrir
íþróttaþættir
K APPGLÍMA VESTMANNAEYJA
Kappglíman t'ar að þessu sinni háð í
Samkomuhúsi Vestmannaeyja í febrúar s. 1.
Keppt var í tveim aldursflokkum. í eldri
flokknum voru 5 keppendur, 3 frá Tý og
2 frá Þór. Sigurvegari t'ar Húnbogi Þorkels-
son (Þór), sem felldi alla keppinauta sína.
Hlaut hann glímubeltið og um leið nafn-
bótina glímukonungur Vestmannaeyja.
Annar varð Kristján Georgsson (Þór), sem
hlaut 3 vinninga. Þriðji Gunnar Stefánsson
(Týr), með 2 tinninga, fjórði Hjörleifur
Guðnason (Týr) með 1 vinning og fimmti
Sigurður Gunnsteinsson (Týr) með o vinn-
ing.
slíku, því að ég veit að, fjöldinn allur dáir
þá báða.
Eg rakna við mér upp úr þessum hugs-
um mínum við það, að strákur og stelpa
setjast í brekkuna fyrir neðan mig. Þau
skrafa saman dálitla stund í hljóði. Svo
tekur hann hana til sín og sveigir hana
með sér niður í grasið.
„Ntt erum \ ið ein“, segir hann lágt, titr-
andi röddu.
„Já“, segir hún enn lægra, og kuntrar
ofurlítið.
Varir hennar eru opnar, hún horfir upp
í himininn og heldur höndunum urn háls
hans. Hann strýkur höndunum um mitti
hennar, og barmur hennar hefst og hnígur
í unaðslegri fró.
Það er bezt fyrir mig að dvelja ekki hér
lengttr, og ég hraða mér af stað.
En ef ég einhvern tíma labba með stelpu
upp í brekku á Þjóðhátíð, þá veit ég nú,
hvað ég á að segja við hana.
xxx