Þjóðhátíðarblað Þórs - 20.07.1946, Síða 17
ÞjÓÐHÁTÍÐARBI ,AÐ ÞQRS
fþróttamenn í frjálsum íþróttum á Þjóðhátíðinni 1943.
Glímukonungur ársins 1945 var Þor-
valdur Ólafsson (Þór). Tók hann ekki þátt
í keppninni að þessu sinni.
I öðrum aldursflokki, en þar eru kepp-
endur 16 ára og yngri, bar Sigur úr býtum
Jón Bryngeirsson (Þór). Hlaut hann að
launum bikar, sem gefinn var af í. B. V.
Þátttakendur í yngri flokknum voru 4.
VORKAPPLEIKIRNIR
Knattspyrnuæfingar byrjuðu óvenju
seint í vor. Má þar mikið um kenna vellin-
um, sem talinn var ónothæfur eftir sjóinn,
setn flæddi yl'ir hann í vetur. Var í ráði að
hætta við að nota botnvöllinn, en reyna að
nýju að endurbæta gamla völlinn fyrir inn-
an Hástein. Hefur það tekið lengri tíma en
til var æt'lazt í fyrstu, skorti til þess bæði fé
og þá sérstaklega samtök íþróttamanna um
að vinna þar í sjálfboðavinnu. Er sá völlur
eigi tilbúinn ennþá, en verður væntanlega
til um þjóðhátíðina eða áður en haustmót
byrja. Nú í vor hefur því þurft að notast
við botnvöllinn, sent, eins og áður segir, er
ill nothæfur, með stórum sandflögum og
blettum þöktum grút. Er því hægt að gera
sér í hugarlund, hve slík skilyrði, sem hér
er um að ræða, geta haft lamandi áhrif á
áhuga íþróttamanna til íþróttaiðkana.
Fyrsta kappleik vorsins háði III. flokk-
ur. Vann Þór hann með 4 mörkum gegn 1.
Var leikur þessi ekki skemmtilegur, því lið-
in voru of ójöfn, Voru Þórsdrengirnir mun
stærri og sterkari. Dómari var Jón Scheving.
Annar leikur vorsins var milli 1. flokks
liðanna. Var það ljótur leikur, sem bar
greinilegust merki slæmrar' þjálfunar. Sigr-
aði Týr nteð 7 mörkum gegn 5'.- Er ntarka-
fjöldinn óvenju mikill og er hér vart dærni
til um slíkt áður.;- Virtusf þó liðin vera
nokkuð jöfn og varð að framlerigja leikn-
unt, sem stóð 5 og 5 hjá hvoru félagi, en
í síðari hálfleik framlengingarinnar tókst
Tý að skora 2 mörk. Dómari: G. Stefánsson.