Skinfaxi - 01.01.2017, Síða 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hvað er gott félag?
Já, hvað skyldi það nú vera? Eflaust eru
ekki allir sammála um hvaða skilyrði þurfi að
uppfylla. En nokkur atriði er gott að hafa í
huga þegar maður veltir því fyrir sér hvort
félagið, sem maður tilheyrir, sé gott félag.
Gott félag þarf helst að vera starfandi og
sæmilega vel rekið. Það á helst ekki að vera
umdeilt (þó að andstæðingar megi auðvitað
vera á öndverðum meiði). En gott félag þarf
fyrst og fremst góða stjórnun.
Góð stjórnun snýst ekki bara um að halda
rekstrinum réttum megin við núllið, það er
líka mjög mikilvægt að stjórnarmenn séu dríf-
andi og geti fengið fólk til liðs við sig til að
gera ótrúlega flotta hluti. Landsmót UMFÍ eru
mjög gott dæmi um hluti sem hægt er að
gera gríðarlega vel, með góðri stjórnun og
frábærum sjálfboðaliðum. Þeir eru orðnir
mjög margir, einstaklingarnir sem hafa tekið
fyrstu skrefin á keppnisvellinum á Unglinga-
landsmóti UMFÍ. Mörgum er það ógleyman-
leg lífsreynsla.
Ég naut reyndar sjálfur aldrei þess heiðurs
að keppa á Unglingalandsmóti. En ég hef
tekið þátt í framkvæmd tveggja þeirra og er í
landsmótsnefndinni fyrir mótið á Egilsstöðum
í sumar. Ég vil nefnilega meina að það sé í
raun ekki síður minnisstætt og skemmtilegt
að taka þátt í mótunum á annan hátt. Hvort
sem það felst í því að dæma knattspyrnuleiki,
skrá inn úrslit í frjálsum eða ræsa spretthlaup.
Það er meira að segja hægt að njóta þess að
raka langstökksgryfju í heilan dag.
Öll þessi störf eru unnin af sjálfboðaliðum,
reyndar eins og stór hluti þeirrar vinnu sem
liggur að baki því að halda þessi mót.
Mikilvægi sjálfboðaliðastarfs í ungmenna-
félagshreyfingunni, og raunar mörgum öðr-
Hvað er gott félag?
um hreyfingum, verður seint fullítrekað.
Hvað þá að allt það góða starf sem unnið er í
sjálfboðavinnu í ungmennafélögunum víða
um land verði fullþakkað.
Ímyndum okkur heim þar sem sjálfboða-
liðastarf væri annaðhvort óheimilt eða þekkt-
ist hreinlega ekki. Hvers værum við þá að
fara á mis? Í svoleiðis heimi væri trúlega
ekkert íþróttastarf, engin ungmennafélög,
engin leikfélög, engir kórar, engir skátar og
engar björgunarsveitir. Þar væru trúlega
engir þjóðgarðar eða önnur náttúruverndar-
svæði því að uppbygging svæða er í mörg-
um tilvikum unnin í sjálfboðavinnu. Það væru
sennilega sárafáir mannfagnaðir, engin þorra-
blót, engin góuhóf, engin spilakvöld, fá ef
nokkur hagyrðingamót og þannig mætti
lengi telja. Allir væru steyptir í sama mót og
sárafátt skemmtilegt í boði. Lífið væri vægast
sagt viðburðasnautt.
Manni líður eiginlega bara illa við tilhugs-
unina, svo að við skulum láta svona hugsanir
eiga sig. Reynum frekar að hugsa um alla þá
góðu hluti sem hægt er að áorka með góðri
stjórnun og frábærum sjálfboðaliðum.
Sigurður Óskar Jónsson,
varastjórnarmaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa:
Efnisyfirlit
Íþróttafélagið Vestri
Langþráð markmið
eftir sameiningu 3
Rósa Marinósdóttir
Dreymdi um að
verða sjáflboðaliði 16
Alexander Kárason
Vill hjólahreysti-
brautir fyrir fólk 27
Hildur Bergsdóttir:i
Félögin eiga að
þjóna iðkendum 8
Hjörtur Þórarinsson
90 ára og enn
á fullu fyrir UMFÍ 18
Íþróttagreinin
Mikill uppgangur
í blaki 29
Angelica Andersson
Hlustið á
ungmennin 12
Laska Nenova
Kolféll fyrir
Hreyfivikunni 22
4 Hvað er gott félag?
6 Azazo vekur athygli
6 Vermir hjartað að fá gullmerki
UMFÍ – Björg Jakobsdóttir
23 Stjórnarseta á ekki að vera þægileg
35 Íþróttabandalög ræða um aðild að
UMFÍ
36 Börnum stafar hætta af hatursorð-
ræðu – Sema Erla Serdar
36 „Takk fyrir félagsmálafræðsluna“
– Unnur Brá Konráðsdóttir
37 Mest að gera hjá sérgreinastjórum
í boccía – Flemming Jessen
37 Samdi vísur um 19 glímukappa
– Jón M. Ívarsson
38 Stjórnar hestasýningu með 140
konum – Ragnheiður Samúelsd.
25 Eru tryggingamálin í lagi?
– Rekstur íþróttafélaga
Unræðupartý UMFÍ
Powerpoint
er dauði 14
Ungt fólk og lýðræði
Ungt fólk lærir
hvert af öðru 40