Skinfaxi - 01.01.2017, Side 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
UNGMENNAFÉLAG
ÞARF AÐ VINNA
FYRIR FÉLAGSMENN
Hildur Bergsdóttir er uppalin á Akur-
eyri, komin af handboltafjölskyldu
fyrir norðan. Hún fór auðvitað beint
í boltann í kringum 10 ára aldurinn
en fann sig ekki þar því að enginn
flokkur var í bænum fyrir stúlkur á hennar
aldri. Hún og vinkona hennar æfðu því tvær
með strákunum sem vildu ekki hafa þær í
hópnum. „Mér fannst líka ekki gaman að vera
ekki best,“ segir hún.
Hildur fann íþróttaáhuga sínum annan far-
veg og fór á sumarnámskeið í frjálsum hjá
Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) á Akureyri.
Þá var hún ellefu ára gömul.
„Ég man það enn að síðasta daginn á nám-
skeiðinu áttum við að hlaupa heilan hring á
vellinum. Það var spennandi. Þarna var líka
sætur og vinsæll íþróttastrákur sem ég var
skotin í og ætlaði að hlaupa uppi. Ég tók mér
stöðu og rauk svo af stað. Ég vissi ekki fyrr en
ég var komin í mark, langt á undan öðrum,
meira að segja stráknum. Þarna gerðist eitt-
hvað. Það hélt mér á fullu í frjálsum. Ég var
efnileg og ætlaði að verða best. Markmiðið
var alltaf gullið. En 18–19 ára fór ég að lenda
í ofþjálfun og veseni eftir 13 æfingar á viku
og vakna með verki. Þá hætti þetta að vera
gaman. Það var líka orðið erfitt að æfa með
bæði vinnu og skóla. Þá fór ég að hlaupa á
mínum forsendum. En síðan varð ég ólétt 19
ára gömul og þá tók annað við.“
Grasekkja á Hallormsstað
Hildur, sem er fædd árið 1978 og verður fertug
á næsta ári, lærði félagsráðgjöf við Háskóla
Íslands og bætti við sig menntun í barna-
vernd á sama tíma og maður hennar vann
hjá Íslenskri erfðagreiningu. Henni líkaði hins
vegar aldrei dvölin í borginni og ákvað að
sækja um starf á landsbyggðinni. Hildur fékk
starf sem félagsráðgjafi austur á Héraði og
flutti með börnin á meðan maður hennar
lauk námi sínu í borginni.
Hildur Bergsdóttir hætti sem
framkvæmdastýra Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands í enda
febrúar sl. til að taka við stöðu félags-
ráðgjafa og skilaði af sér góðu verki.
Í hennar stað hefur verið ráðin Ester S.
Sigurðardóttir. Hildur segir í samtali
við Skinfaxa miklu skipta fyrir héraðs-
samband að hafa starfsmann í fullu
starfi og stjórn sem bæði geti hugsað
og þori að hugsa út fyrir kassann.
Hún hefur lagt sérstaka áherslu á
starf með ungmennum hjá UÍA.
Það skili sér í sterkara félagi.
– En hver er Hildur?