Skinfaxi - 01.01.2017, Síða 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Angelica Andersson var ein
fyrirlesara á ráðstefnunni Raddir ungs fólks
skipta máli sem Evrópa unga fólksins stóð
fyrir í mars. Angelica sagði áhrifaríka sögu
af þeim erfiðu aðstæðum sem hún bjó við í
æsku en vann sig út úr.
„Þegar ég var 10 ára bjó fjölskylda mín í
vondu hverfi í litlum bæ. Bróðir minn var
þekktur glæpamaður. Ég var alltaf utanveltu
í skóla. Margir útlendingar komu í skólann.
Ég tengdist þeim af því að þeir voru utan-
veltu,“ segir Angelica Andersson frá Svíþjóð,
ein af fyrirlesurunum á ráðstefnu Evrópu
unga fólksins.
Angelica sagði sögu af bernskuvini sínum,
innflytjanda eins og fleiri úr vinahópi hennar.
Sökum uppruna síns varð hann fórnarlamb
eineltis í skóla þeirra í bænum. Hann hristi
af sér átökin og lokaði augunum fyrir þeim.
Þegar skólameistari skólans sakaði drenginn
eitt sinn um að vera upphafsmann slagsmála
stóð til að reka hann tímabundið úr skólan-
um. Angelicu var nóg boðið. Þrátt fyrir ungan
aldur hóaði hún í vini sína og kvörtuðu þau
yfir hátterninu enda átti drengurinn enga sök
á því að var veist að honum. Skólayfirvöld
drógu því ákvörðunina til baka. „Fyrir mér var
þetta stórt skref. Þetta opnaði augu mín fyrir
því að við getum komið einhverju til leiðar í
sameiningu,“ sagði Angelica og benti á að
þarna hafi hún fundið að réttlætið geti sigrað.
Angelica varaði við því að taka ungmenna-
ráðum sem gefnum og benti á nokkra þætti
sem geti latt ungmenni til þátttöku í ung-
mennaráðum og starfi þeim tengdum. Þvert
á móti verði að forðast að láta litla hópa verða
ráðandi. Þess í stað á að hvetja til að hug-
myndir verði til hjá öllum þeim sem eru í ung-
mennaráðinu. Það verður jafnframt að vera
sveigjanlegt og geta tekið á ýmsum málum.
„Ungmennaráð geta verið öflug ef þau
vilja það. En það verður að vera skemmti-
legt að taka þátt í starfi,“ sagði Angelica og
nefndi sem dæmi að sænsk ungmennaráð
hafi sett á laggirnar lýðræðishátíð, búið til
sumarstörf fyrir ungmenni, komið á ókeypis
ökukennslu, skipulagningu útisvæða og
mörgu fleiru.
Ráðstefnan „Raddir ungs fólks skipta
máli“ var haldin þann 17. mars á Hilton
Nordica Hotel. Ráðstefnan fór vel fram
og voru gestir vel á annað hundrað. Ráð-
stefnugestir voru ungmenni í ungmenna-
ráðum og starfsmenn sem vinna með
ungmennum eða að málefnum þeirra.
Ráðstefnan skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri
fluttu erindi þau Angelica Anderssen frá
Svíþjóð, Guðmundur Ari Sigurjónsson,
Þóra Jónsdóttir, Helga Haraldsdóttir og
Kristján Hilmir Baldursson. Í seinni hlutan-
um voru málstofur þar sem einstök mál
voru krufin til mergjar. Sérstök áhersla
var lögð á lýðræði ungmenna og mikil-
vægi þess að þau hafi áhrif á þær ákvarð-
anir sem teknar eru varðandi málefni
þeirra. Farið var yfir hvernig ungmenna-
ráð geta verið gagnleg ef að farið er rétt
að starfseminni, annars geta þau hrein-
lega latt samfélagið.
Fyrirlesarar stjórnuðu málstofum eftir
hádegi og voru þær fjölbreyttar, skemmti-
legar og fræðandi. Í málstofunum voru
margvíslegar hugmyndir ræddar, allir
lögðu sitt af mörkum til þess að finna
leiðir til þess að gefa ungmennum frekari
tækifæri til þess að láta raddir sínar heyrast.
Angelica An-
dersson sagði
áhrifaríka sögu úr
æsku sinni.
Ungmennaráð er upp spretta hugmynda
„Ungmennaráð geta
verið öflug ef þau vilja
það. En það verður að
vera skemmtilegt að
taka þátt í starfi þeirra“.