Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.2017, Qupperneq 15

Skinfaxi - 01.01.2017, Qupperneq 15
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15 Umræðupartýið var fyrsta partýið af fjórum sem UMFÍ mun standa fyrir á næstu tveimur árum. Næsta partý er á dagskrá í maí 2017. Fylgstu með á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is). • UMFÍ eflir þátttöku í hreyfingu og íþróttum. Týndur aldurshópur Undir viðfangsefninu þátttaka í skipulagðri hreyfingu og íþróttum komu skýr skilaboð frá ungmennum um að aldurshópnum 17–30 ára finnist hann vera svolítið út undan, sér- staklega þau sem hafa ekki áhuga á afreks- mennsku eða horfa á sigur almennt sem lokamarkmið. Jafnframt kom fram að ung- mennum finnst pressan oft og tíðum vera of mikil á keppni, afrek og mætingaskyldu í íþróttum og öðrum þáttum daglegs lífs. Ungmennin óskuðu eftir því að boðið verði upp á skipulagt starf þar sem áhersla sé lögð á þátttöku og félagslegan ávinning eða að búinn verði til vettvangur þar sem vinir geti hist, skemmt sér saman og tekið þátt í mismunandi íþróttum. Flest ungmenn- in nutu hins félagslega þáttar íþrótta og þeirrar félagslegu virkni sem fylgir þeim fremur en að horfa til þess að ná sem lengst í sinni grein. Mörg ungmenni viðurkenndu nefnilega að þau upplifi hið gagnstæða; að litið sé svo á að árangurinn og sú íþróttagrein sem þau stundi sé undirstaðan en félagslegi þátturinn það sem af iðkuninni leiðir. • UMFÍ er leiðandi í fræðslu og forvörnum. Óskað eftir forvarnafræðslu Í umræðum um fræðslu og forvarnir var leitað eftir svörum um það hvernig fræðslu eða upp- lýsingar um forvarnir ungt fólk vilji sjá og hver áhrifaríkasta leiðin sé til að koma for- varnafræðslu á framfæri við ungmenni. Ung- mennin sögðust mörg vilja meiri fræðslu um langtímaáhrif af notkun rafretta, hvernig hægt sé að nýta sér streitu á jákvæðan hátt, fræðslu um kvíða, svo sem hvenær hann sé talinn eðli- legur og hvar mörkin séu gagnvart að hinu óeðlilega. Einnig komu fram óskir um fræðslu um einkenni ofþjálfunar, næringarfræði og notkun fæðubótarefna. Til viðbótar komu fram óskir um fræðslu um samfélagsmiðla og hvaða áhrif þeir geti haft til lengri tíma, til dæmis á kvíða, streitu, svefn og þunglyndi. Svör við því hvernig best væri að koma fræðslu og upplýsingum á framfæri við ung- menni voru mjög skýr. Ungmennin voru sam- mála um það að jafningjafræðsla væri það sem virkaði best og sú leið sem þau tækju mest mark á. Þau sögðu mikilvægt að þjálf- arar væru til fyrirmyndar, utan vallar sem innan. Það sama á við um leikmenn í meist- araflokkum eða eldri deildum. Ungmennin sögðu leikmenn í meistaraflokkum og þá sem eigi að vera til fyrirmyndar misstíga sig stundum og senda misvísandi skilaboð. Dæmi um slíkt er þegar dreift er veggspjöld- um með mynd af þeim og þeir hvetji til heil- brigðs lífernis en sjáist svo á netmiðlum, Facebook eða YouTube ýmist með tóbak í vör eða drukknir. • UMFÍ er nútímaleg og leiðandi samtök. Gamalt fólk í stjórnum félaga Í umræðunni um nútímaleg vinnubrögð, eða hipp og kúl íþróttastarf, kom fram að ung- mennum finnast íþróttafélög starfa á nútíma- legan hátt og hafi tileinkað sér samfélags- miðla til að koma upplýsingum á framfæri. Á hinn bóginn kom skýrt fram að ungmenni kjósa mun frekar persónulega nálgun en upplýsingar í gegnum samfélagsmiðla. Jafn- framt voru ungmennin sammála því að auka þurfi hlutfall ungs fólks í nefndum og stjórnun félaga. Í dag finnst mörgum ungmennum stjórnir félaga vera nokkurs konar foreldra- og/eða afa- og ömmu-starf. Kynna þurfi félagsstarf betur fyrir ungmennum, poppa það upp svo ungt fólk vilji sækjast eftir því að fá sæti í nefndum og stjórnum. Takist það munu raddir ungs fólks heyrast betur. Mörgum ungmennum finnast þau aðeins vera neytendur í þeim félögum sem þau eru skráð í fremur en þátttakendur. Ungmenni greiða æfingagjöld og finnst þess vegna ekki ástæða til að gera eitthvað meira fyrir félögin sín. Ein hugmynd sem kom fram í umræðu- partýinu var að stofna ungmennaráð innan hvers ungmennafélags. Ráðið yrði að hafa skýran tilgang og hlutverk, vera málsvari ungs fólks og vera sá aðili sem kynnti starf félags- ins fyrir öðru ungu fólki. Sú leið gæti aukið þátttöku ungs fólks í félagsstarfi. En hvernig á að gera íþróttastarf meira hipp og kúl? Fram kom tillaga um að draga úr sér- hæfni félaga – auka fjölbreytni þeirra og draga úr pressu og mætingaskyldu á æfingar. Jafn- framt megi draga úr ríg á milli deilda innan félaga og auka samstarf þeirra á milli. Sam- vinna skili árangri og það sé hipp og kúl. „Power point er dauði!“

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.