Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Gekk 20 kílómetra alla mótsdagana „Mér finnst æðislegt að vera sjálfboðaliði. Ég kynntist Ungmennafélaginu Reyni þegar ég var lítil í sveit á Stóru-Hámundarstöðum á Árskógsströnd og æðsti draumur minn var að komast í ungmennafélag,“ segir Rósa Marinósdóttir. Rósa hefur verið sjálfboðaliði undir merkjum Ungmennafélagsins Íslend- ings og Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) síðan árið 1980 eða í samfleytt 37 ár. Tekið var eftir því á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi í fyrra hversu ötul Rósa var á frjálsíþróttavellinum og stýrði þátttakendum af krafti. Rósa gekk rúmlega 20 kílómetra á dag alla mótsdagana. Er alltaf að vinna að einhverju Rósa er uppalin á Akureyri. Þar var ekkert ung- mennafélag í æsku hennar. Stóru-Hámundar- staðir eru á svæði Ungmennafélagsins Reynis og þar dreymdi hana um að gerast félags- maður, frá 6–16 ára aldurs. Rósa flutt- ist 25 ára gömul að Hvanneyri í Borgarfirði árið 1980. Þar varð draumurinn að veru- leika þegar henni var boðið að ganga í Ung- mennafélagið Íslending. „Ég hef verið sjálfboðaliði alveg síðan ég gekk í ungmennafélagið,“ segir Rósa. Ung- mennafélagið Íslendingur rekur Hreppslaug í Skorradal en síðan hefur hún tekið þátt í Rósu dreymdi um að verða sjálfboðaliði leiksstarfi félagsins og verið dómari á mörg- um mótum. Starfið vatt upp á sig og Rósa hefur unnið lengi fyrir UMSB og Frjálsíþrótta- samband Íslands víða um land, meðal annars sem dómari. Rósa hefur líka unnið mikið fyrir körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi og unnið á nytjamarkaði sem félagið hefur starfrækt í Brákarey frá árinu 2009. Þar er opið einu sinni í viku og skipta starfsmenn þar vinnunni á milli sín. Þessu til viðbótar er Rósa formaður kvenfélagsins á Hvanneyri. „Þar er unnið heilmikið starf,“ og henni telst til að hún vinni fleiri vikur á ári sem sjálf- boðaliði en ekki. „Ég er alltaf að vinna að ein- hverju í sjálfboðaliðastarfi.“ Ánægjan að vinna með öðrum Rósa þarf ekki að hugsa sig lengi um, spurð að því hvað sjálfboðaliðastarf gefi henni. „Það er ánægjan og samskiptin við annað fólk. Þetta er mikið samneyti við fólk með svipaðan hugsunarhátt,“ segir hún. „Þetta er svakalega gaman. Samfélagið þarf á þessu að halda. Íþróttahreyfingin öll og félags- starfið gengi heldur ekki nema fyrir okkur, sjálfboðaliðana.“ Rósa segir UMFÍ hafa ávallt þakkað sjálf- boðaliðum vel fyrir starfið sem þeir inna af hendi og fleiri félagasamtök líka þótt það sé ekki vel sýnilegt utan hreyfingarinnar. Spurð að því hvað megi gera betur svarar Rósa því til að halda megi utan um tímafjöldann sem sjálfboðaliðarnir leggja fram. Það hafi verið gert mjög vel á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi. „Þar var einn í stjórninni með eyðublöð og lét alla skrá tímana á það. Það var í fyrsta skipti sem ég hef séð vel haldið utan um framlag sjálfboðaliða,“ segir Rósa. Á sambandsþingi UMSB í mars sl. hlaut Rósa Marinósdóttir viðurkenn ingu fyrir að hafa innt af hendi flestar vinnu- stundir allra sjálfboðaliða í tengslum við Ung- lingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um verslun- armannahelgina 2016. Rósa gat ekki setið þing UMSB og tekið við viðurkenningunni og sendi því dóttur sína í staðinn. Sjálf var Rósa að sjá um kaffiveitingar fyrir sjálfboða- liða í Björgunarsveitinni Oki. Viðurkenningin var stækkuð mynd af Rósu með dætrum sínum við sjálfboðaliða- störf á Unglingalandsmótinu. Rósu finnst myndin skemmtileg en hefði viljað sjá fjölskylduna alla á myndinni. „Það vant- aði bara manninn og soninn,“ segir Rósa en fjölskyldan var öll að vinna á mótinu. „Börnin hafa verið alin upp í þessu. Sjálf- boðaliðastarfið gengur í erfðir.“ Rósu finnst mikilvægt að taka fram að fleiri fjölskyldur í Borgarfirðinum eru öfl- ugar í sjálfboðaliðastarfi en hún og hennar fólk. Þar á meðal séu nágrannar hennar, hjónin Guðmundur Sigurðsson og Sigrún Kristjánsdóttir, sem búa á móti henni og börn þeirra og fjölskyldan á bænum Lundi í Lundarreykjadal.Hafði ekki tíma fyrir viðurkenningu Rósa Marinósdóttir var heiðruð vegna skeleggrar framgöngu sem sjálfboðaliði á Ung- lingalandsmótinu í Borgarnesi 2016. Hún gekk tugi kílómetra á hverjum degi. Öll fjölskylda Rósu vann á mótinu. Sjálf vinnur hún fleiri daga á ári sem sjálfboðaliði en ekki og telur að áhuginn á starfi sjálfboðaliða gangi í erfðir.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.