Skinfaxi - 01.01.2017, Qupperneq 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Gekk 20 kílómetra
alla mótsdagana
„Mér finnst æðislegt að vera sjálfboðaliði. Ég
kynntist Ungmennafélaginu Reyni þegar ég
var lítil í sveit á Stóru-Hámundarstöðum á
Árskógsströnd og æðsti draumur minn var
að komast í ungmennafélag,“ segir Rósa
Marinósdóttir. Rósa hefur verið sjálfboðaliði
undir merkjum Ungmennafélagsins Íslend-
ings og Ungmennasambands Borgarfjarðar
(UMSB) síðan árið 1980 eða í samfleytt 37
ár. Tekið var eftir því á Unglingalandsmótinu
í Borgarnesi í fyrra hversu ötul Rósa var á
frjálsíþróttavellinum og stýrði þátttakendum
af krafti. Rósa gekk rúmlega 20 kílómetra á
dag alla mótsdagana.
Er alltaf að vinna
að einhverju
Rósa er uppalin á Akureyri. Þar var ekkert ung-
mennafélag í æsku hennar. Stóru-Hámundar-
staðir eru á svæði Ungmennafélagsins Reynis
og þar dreymdi hana um að gerast félags-
maður, frá 6–16 ára aldurs. Rósa flutt-
ist 25 ára gömul að Hvanneyri í Borgarfirði
árið 1980. Þar varð draumurinn að veru-
leika þegar henni var boðið að ganga í Ung-
mennafélagið Íslending.
„Ég hef verið sjálfboðaliði alveg síðan
ég gekk í ungmennafélagið,“ segir Rósa. Ung-
mennafélagið Íslendingur rekur Hreppslaug
í Skorradal en síðan hefur hún tekið þátt í
Rósu dreymdi um
að verða sjálfboðaliði
leiksstarfi félagsins og verið dómari á mörg-
um mótum. Starfið vatt upp á sig og Rósa
hefur unnið lengi fyrir UMSB og Frjálsíþrótta-
samband Íslands víða um land, meðal annars
sem dómari. Rósa hefur líka unnið mikið fyrir
körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi
og unnið á nytjamarkaði sem félagið hefur
starfrækt í Brákarey frá árinu 2009. Þar er
opið einu sinni í viku og skipta starfsmenn
þar vinnunni á milli sín. Þessu til viðbótar er
Rósa formaður kvenfélagsins á Hvanneyri.
„Þar er unnið heilmikið starf,“ og henni telst
til að hún vinni fleiri vikur á ári sem sjálf-
boðaliði en ekki. „Ég er alltaf að vinna að ein-
hverju í sjálfboðaliðastarfi.“
Ánægjan að vinna
með öðrum
Rósa þarf ekki að hugsa sig lengi um, spurð
að því hvað sjálfboðaliðastarf gefi henni.
„Það er ánægjan og samskiptin við annað
fólk. Þetta er mikið samneyti við fólk með
svipaðan hugsunarhátt,“ segir hún. „Þetta er
svakalega gaman. Samfélagið þarf á þessu
að halda. Íþróttahreyfingin öll og félags-
starfið gengi heldur ekki nema fyrir okkur,
sjálfboðaliðana.“
Rósa segir UMFÍ hafa ávallt þakkað sjálf-
boðaliðum vel fyrir starfið sem þeir inna af
hendi og fleiri félagasamtök líka þótt það sé
ekki vel sýnilegt utan hreyfingarinnar.
Spurð að því hvað megi gera betur svarar
Rósa því til að halda megi utan um tímafjöldann
sem sjálfboðaliðarnir leggja fram. Það hafi
verið gert mjög vel á Unglingalandsmótinu
í Borgarnesi. „Þar var einn í stjórninni með
eyðublöð og lét alla skrá tímana á það. Það
var í fyrsta skipti sem ég hef séð vel haldið
utan um framlag sjálfboðaliða,“ segir Rósa.
Á sambandsþingi UMSB í mars sl. hlaut
Rósa Marinósdóttir viðurkenn ingu
fyrir að hafa innt af hendi flestar vinnu-
stundir allra sjálfboðaliða í tengslum við Ung-
lingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um verslun-
armannahelgina 2016. Rósa gat ekki setið
þing UMSB og tekið við viðurkenningunni
og sendi því dóttur sína í staðinn. Sjálf var
Rósa að sjá um kaffiveitingar fyrir sjálfboða-
liða í Björgunarsveitinni Oki.
Viðurkenningin var stækkuð mynd af
Rósu með dætrum sínum við sjálfboðaliða-
störf á Unglingalandsmótinu. Rósu finnst
myndin skemmtileg en hefði viljað sjá
fjölskylduna alla á myndinni. „Það vant-
aði bara manninn og soninn,“ segir Rósa
en fjölskyldan var öll að vinna á mótinu.
„Börnin hafa verið alin upp í þessu. Sjálf-
boðaliðastarfið gengur í erfðir.“
Rósu finnst mikilvægt að taka fram að
fleiri fjölskyldur í Borgarfirðinum eru öfl-
ugar í sjálfboðaliðastarfi en hún og hennar
fólk. Þar á meðal séu nágrannar hennar,
hjónin Guðmundur Sigurðsson og Sigrún
Kristjánsdóttir, sem búa á móti henni og
börn þeirra og fjölskyldan á bænum Lundi
í Lundarreykjadal.Hafði ekki tíma fyrir viðurkenningu
Rósa Marinósdóttir var heiðruð vegna
skeleggrar framgöngu sem sjálfboðaliði á Ung-
lingalandsmótinu í Borgarnesi 2016. Hún gekk
tugi kílómetra á hverjum degi. Öll fjölskylda
Rósu vann á mótinu. Sjálf vinnur hún fleiri
daga á ári sem sjálfboðaliði en ekki og telur að
áhuginn á starfi sjálfboðaliða gangi í erfðir.