Skinfaxi - 01.01.2017, Qupperneq 30
30 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
B lakfélagið Hvannirnar á Hvanneyri er
eina félagið innan UMSB sem býður
upp á blak. Félagið hefur æft og keppt í
30 ár. Um 15 konur æfðu með félaginu á
Kleppjárnsreykjum og Varmalandi í fyrra.
„Hingað koma konur úr öllum Borgarfirði
og ofan úr Húsafelli,“ segir Sólrún Halla
Bjarnadóttir, sambandsstjóri Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar, en hún heldur
utan um blakfélagið og þjálfar Hvannirnar.
Í Dalvíkurbyggð æfa að meðaltali 24 konur
og 12 karlar blak í vor. Æfingar eru tvisvar í
viku, á mánudögum og miðvikudögum. Æft
er í eina og hálfa klukkustund í hvert skipti,
frá byrjun september til loka apríl.
Haldið hefur verið blaknámskeið á veg-
um Ungmennasambands Dalamanna
og Norður-Breiðfirðinga í Búðardal en ekki
er boðið upp á reglulegar æfingar. Síðasta
námskeiðið var í janúar og febrúar 2017.
Ungmennafélagið Kormákur býður upp á
blak fyrir 14 ára og eldri. Karlar og konur
eru saman á æfingum í íþróttamiðstöðinni á
Hvammstanga. Æft er á þriðjudögum og
fimmtudögum.
„Við erum mjög fá, erum svolítið í startholun-
um. Það er áskorun að bjóða upp á nýja grein,“
segir Svandís Þorsteinsdóttir, formaður blak-
deildar Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags.
Um fimm ár eru síðan deildin var stofnuð í
Keflavík. Í blakdeildinni eru 23 iðkendur 18
ára og eldri en aðeins fjórir yngri og koma
þeir allir frá Suðurnesjum þar sem ekki er boð-
ið upp á blak. Karlar og konur æfa saman og
eru kynjahlutföll iðkenda jöfn.
Svandís segir ýmsa þætti skýra það hversu
fámenn blakdeildin er. Erfitt er að fá tíma í
íþróttahúsi fyrir æfingar og þarf deildin að
keppa þar við rótgrónari deildir. Nær einu tím-
arnir sem hafa fengist eru fyrir einn völl klukk-
an 21:30 á kvöldin. Ekki gangi að bjóða upp
á slíkt fyrir börn auk þess sem fólk í dagvinnu
sjái sér vart fært að æfa blak seint á kvöldin.
Svandís segir erfitt að fá þjálfara fyrir þær
fáu klukkustundir sem boðið er upp á blak
í Keflavík. Stefnt er á að bæta úr því í
haust. „Þótt iðkendagjöld séu ekki há höf-
um við verið að safna inn á reikning fyrir
launum þjálfara, fáum þjálfarastyrk til
viðbótar og vonumst til að geta ráðið einn
í haust.“ Til að bæta upp fyrir þjálfaraleysið
hefur Svandís náð sér í réttindi til að æfa
með börnum og hefur hún séð um barna-
starf blakdeildarinnar í fjögur ár. Hún segir
það áskorun að halda börnum í blaki enda
heilli körfuboltinn og knattspyrnan. Af
þeim sökum sé erfitt að ná nægum fjölda
í blaklið nema sameinast öðrum í liði eins
og raunin hefur verið.
En hver er ástæðan fyrir þessum áhuga
þegar áskorunin er svo mikil?
Svandís er Dalvíkingur og fór á heima-
vistarskóla á Laugar. Á báðum stöðum er
rík blakhefð. Öll fjölskyldan stundar blak
og eru þau öll í deildinni í Keflavík, bæði
maður og börnin þrjú. Synirnir og eigin-
maðurinn kepptu auk þess saman á
Íslandsmóti í blaki í 2. deild í fyrrahaust.
Keflavík Áskorun að bjóða
upp á nýja grein hjá
rótgrónu félagi
HvammstangiBúðardalurDalvík
Hvanneyri