Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2017, Síða 31

Skinfaxi - 01.01.2017, Síða 31
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31 Neskaupstaður Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir er formaður blakdeildar Þróttar í Nes- kaupstað. Hún á að baki glæstan feril í blaki, er margföld landsliðskona og Íslandsmeistari. Maður hennar var í unglinga- landsliði í blaki. Börnin þeirra æfa líka blak og tvö þeirra eru komin í unglingalandslið. „Ég veit ekki hver ástæðan er fyrir þessu,“ segir Þorbjörg og segir kát í kampinn að líklega gangi blak í erfðir enda margar fjölskyldur í bænum sem iðki blak. Lið frá Neskaupstað hafa verið sterk á blakvellinum í gegnum tíðina. Uppganginn má þakka þeim Ólafi Hr. Sigurðssyni, sem nú býr á Seyðisfirði, og Grími Magnússyni en þeir hófu að þjálfa blak í bænum árið 1978 í litlu íþróttahúsi. Í bæinn hafa komið þjálfarar frá Kína og nú er þar par frá Spáni sem þjálfar bæði karla- og kvennaflokka og yngri. Haustið 2016 voru 143 iðkendur skráðir í blak í Neskaupstað, þar af 104 börn og 39 fullorðnir. Þróttarar áttu á sama tíma átján félagsmenn í ellefu landsliðsverkefnum í sex landsliðum. Nokkrir keppa í fleiri en einu landsliði. Dóttir Þorbjargar ein var í U-19 landsliði og A-landsliði. Ástæðan fyrir sterkum yngri flokkum er sú að ungmennin fara úr bænum í nám. „Við búum við það að missa krakkana frá okkur þegar þau eru búin með framhaldsskóla. Þá fara þau oft eitthvað. Við erum að Ó lafur Hr. Sigurðsson hefur síðastliðin 20 ár þjálfað blak á Seyðisfirði og komið bænum á kortið í blakheiminum. Ólafur og Grímur Sigurðsson eru guðfeður blaksins í Neskaupstað og hefur Ólafur farið á milli bæj- anna í þeim tilgangi að styðja við íþróttina. Ólafur kynntist blaki hjá Hermanni Stefánssyni þegar hann var í Menntaskólan- um á Akureyri undir lok sjöunda áratugar 20. aldar. „Hermann kynntist blaki í Þýskalandi, hann færði það hingað heim og þaðan breiddist það út. Ég byrjaði að æfa það árið 1972 og hef þjálfað frá árinu 1975,“ segir Ólafur og tekur fram að Hermann sé fyrsti einstaklingurinn á Íslandi til að hljóta gull- merki Blaksambands Íslands. Er enn að keyra í krakkablak Ólafur fluttist austur í Neskaupstað árið 1978 og stofnaði þar blakdeild árið eftir ásamt því að kenna á skíði og þjálfa handbolta. Ólafur segir ástæðuna fyrir því að blak hafi lengi átt vinsældum að fagna á Íslandi, ekki síst úti á landi, þá að fáir geti myndað lið. Á vellinum í leik fullorðinna og öldunga eru sex á vellinum í einu en fjórir í krakkaliði og spila þau á bad- byggja upp meistaraflokk karla og ná inn yngri iðkendum þar. Hann hefur verið byggður upp á 30+ jöxlum,“ segir Þorbjörg. „Svo skil- uðu strákarnir sér ekki eins vel í blakið og stúkurnar enda hefur fótboltinn laðað þá til sín. En þetta hefur verið að breytast. Blak- sambandið hefur staðið sig vel í því að koma fleiri unglingaliðsverkefnum í gang fyrir bæði kyn. Strákarnir sjá þar kannski glugga til að koma inn í íþróttina.“ Þorbjörg bendir á að þrátt fyrir að ytri um- gjörð íþróttarinnar skipti máli, svo sem kraft- ur í þjálfurum, aðstaðan og góðir æfinga- tímar, þá sé það oft á endanum ákvörðun vinanna sem ráði. „Ef ég á ekki vin í blaki þá eru litlar líkur á að ég endist í blaki.“ Seyðisfjörður Í læri hjá guðföður blaksins á Íslandi mintonvelli. Ólafur segir uppgang blaksins skýrast af því að vellirnir í gömlu íþróttahús- unum á árum áður hafi verið svo litlir að þeir hafi rétt aðeins rúmað blakvelli. Þegar við bættist að fáa þurfti í lið hafi greinin blómstr- að. „Íþróttahúsið í Neskaupstað var svo lítið að aðrar íþróttagreinar náðu sér ekki á strik,“ segir Ólafur og bætir við að mestu skipti fyrir íþróttina að þjálfarar hafi komið í bæinn. Á árunum 1988-90 var þjálfari frá Kína. Nú er í bænum spænskt par sem þjálfar blak. Svo vel tókst hjá Ólafi og Grími á Neskaupstað að nokkrum mánuðum eftir að boðið var þar upp á blak í fyrsta sinn voru iðkendur orðnir 220 og blakdeildin orðin sú stærsta á Íslandi. „Okkur tókst alltaf að halda jafnvægi í þessu – jöfn kynjahlutföll, sem er óvenjulegt í íþróttum,“ segir hann. Ólafur var sæmdur gullmerki Blaksam- bands Íslands fyrir störf sín árið 1991 og var hann sá næsti á eftir Hermanni til að hlotnast sá heiður. Og Ólafur er enn að: „Ég er að spila enn á fullu, orðinn 63 ára. Konan mín sér um krakkablakið á Seyðisfirði en ég keyri þau út um allt.“ Blak gengur líklega í erfðir í Neskaupstað Ólafur er annar Íslendingurinn til að hljóta gullmerki Blaksambands Íslands fyrir vinnu. Hinn var Hermann Stefánsson, upphafsmaður blaksins á Íslandi.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.