Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.01.2017, Blaðsíða 35
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35 Nýverið skilaði nefnd af sér tillögum um aðild íþróttabandalaga að UMFÍ. Tillög- urnar verða lagðar fyrir sambandsþing UMFÍ í október. Verði tillögurnar samþykktar munu íþróttabandalögin fá stöðu sambands- aðila innan UMFÍ, ungmenna- og íþróttahreyf- ingin styrkjast og geta mætt þörfum félaga betur en áður. Formaður UMFÍ segir þetta ein- stakt tækifæri og styrkja alla sambandsaðila. Farvegur sem styrkir hreyfinguna „Við höfum unnið að þessu markvisst nú í eitt og hálft ár,“ segir Haukur Valtýsson, for- maður UMFÍ, sem unnið hefur með nefnd sem vinnur að undirbúningi aðildar íþrótta- bandalaganna að UMFÍ. Mörg ár eru síðan íþróttabandalögin sóttu fyrst um aðild að UMFÍ. Á sambandsþingi UMFÍ í Vík í Mýrdal haustið 2015 var samþykkt viljayfirlýsing um aðild þeirra. Á sambandsþingi UMFÍ á Hall- ormsstað í október 2017 verða lagðar fram tillögur um með hvaða hætti aðild þeirra get- ur orðið með breytingum á lögum og reglu- gerðum. Sambandsaðilar hafa fengið tillögur nefndar UMFÍ sendar og eru þeir þessa dag- ana að ræða málið innan sinna raða. Tillög- urnar verða ræddar á sambandsþinginu og þar tekin afstaða til þeirra með formlegum hætti. Forsvarsmenn sex íþróttabandalaga komu að upphaflegri viljayfirlýsingu um aðild að Vinnubrögð til fyrirmyndar Skipting lottótekna UMFÍ Miklum meirihluta lottótekna UMFÍ er deilt út til sambandsaðila og félaga með beina aðild á hverju ári. Árið 2015 úthlut- aði UMFÍ rúmum 126,7 milljónum króna til sambandsaðila og félaga með beina aðild. Ungmennasamband Kjalarnes- þings (UMSK) fékk 30% fjárins eða sem nemur 38 milljónum króna. Héraðssam- bandið Skarphéðinn (HSK) fékk 13,9 milljónir og aðrir fengu minna. Ung- mennafélagið Óðinn og Ungmenna- félagið Víkverji fengu lægstu upp- hæðirnar, tæplega 51 þúsund krónur. UMFÍ. Aðeins Íþróttabandalag Reykjanesbæj- ar (ÍRB) hefur fram til þessa staðið utan hennar. Haukur segir ástæðu aðildar þá að íþrótta- bandalögin vilji leggja áherslu á það sem ung- mennafélagshreyfingin stendur fyrir á sama hátt og núverandi sambandsaðilar. „Það sem ungmennafélagshreyfingin stendur fyrir hvet- ur til þátttöku sem flestra í reglubundinni hreyfingu, fjölbreytts starfs, fræðslu og for- varna, grasrótarstarfs og því að deila og miðla reynslu sinni í starfinu. Það eykur slagkraft ungmennafélagshreyfingarinnar til muna þegar öll íþróttahéruð og aðildarfélög þeirra verða á sama plani. „Þarna er kominn farveg- ur til að styrkja hreyfinguna og gera gott starf betra,“ segir Haukur. Hugað að minni sambandsaðilum Í vinnu nefndar UMFÍ hefur verið haft að leið- arljósi að bæta hagræði og skilvirkni í ung- mennahreyfingunni á sama tíma og hugað er að hagsmunum núverandi sambandsaðila UMFÍ. Þess vegna er í tillögunum þak á fjölda þingfulltrúa frá stærri sambandsaðilum á þingum UMFÍ. Það þak er lækkað frá núgild- andi reglum. Með þeim hætti er tryggt að allir geti haft tækifæri til þess að hafa áhrif. Mörg af félögum UMFÍ með beina aðild halda áfram aðild sinni þrátt fyrir aðild íþróttabanda- laga en munu hafa hana í gegnum íþrótta- bandalögin hvert á sínu svæði með sama hætti og önnur félög eiga í dag í gegnum héraðssamböndin. Haukur segir að í kjölfar aðildar verði leitað til ÍSÍ um heildarskiptingu lottó þar sem nú- verandi reglur geri ráð skerðingu sambands- aðila UMFÍ hjá ÍSÍ. Leitað verður eftir sátt um skiptingu þess. „Tillagan felur í sér að íþrótta- bandalögin fá ekki aðgang að lottófjármagn- inu fyrr en UMFÍ og ÍSÍ hafa samið upp á nýtt, og sú skipting samþykkt,“ segir hann og bend- ir á að lottóið sé einn mikilvægasti tekjuliður minni sambandsaðila og því mikilvægt hags- munamál. „Þetta er einstakt tækifæri til að snúa bökum saman og horfa til framtíðar.“ Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ Íþróttastarfið getur orðið sterkara um allt land Formaður stjórnar ÍBR vonast til þess að aðild íþróttabandalaga að UMFÍ skili sér í sterkari íþróttahreyfingu. „Við höfum sett okkur markmið með Reykjavíkurborg um að efla íþróttastarf í hverfum borgarinnar og geta boðið upp á íþróttastarfi í göngufæri fyrir hvert barn. Þetta markmið getum við yfirfært á lands- vísu með UMFÍ,“ segir Ingvar Sverrisson, for- maður Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR). Hann vonast til að aðildarviðræður UMFÍ og íþróttabandalaganna gangi eftir því vænt- ingar eru um að það styrki héraðssamböndin á sveitarstjórnarstiginu með hag sem flestra að leiðarljósi. „Þetta snýst ekki bara um Reykja- vík. Við munum leggja fram tillögu á næsta þingi ÍSÍ í maí um að ríkið efli enn frekar íþróttastarf á landsbyggðinni. Við höfum lagt á þetta mikla áherslu,“ segir Ingvar. Ingvar horfir til þess að aðildarfélög ÍBR og UMFÍ vinni saman að skipulagningu og undirbúningi stærri móta. Mót og viðburðir UMFÍ geti orðið sterkari með samvinnu við íþróttabandalögin. „Við höfum verið þátttakendur á mótum UMFÍ en ekki þátttakendur í því að halda þau. Við höfum mikinn áhuga á að efla mót- in og vinna með UMFÍ að því,“ segir Ingvar og bendir á að ÍBR og íþróttabandalögin búi að mikilli þekkingu á rekstri móta. Á meðal þeirra sem ÍBR stendur fyrir eru Reykjavíkur- maraþonið og Laugarvegshlaupið. Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR). 79% til sambandsaðila 14% til UMFÍ 7% til Fræðslu- og verkefnasjóðs 40% skipt eftir íbúafjölda 40% skipt eftir félags- mannafjölda 20% skipt samkvæmt sérstakri reglu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.