Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 36

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands „Hatursorðræða er ein af þeim miklu hættum sem steðja að börnum og ung- mennum – og öðrum – á Netinu í dag. Þetta er vaxandi áhyggjuefni,“ segir Sema Erla Serdar, verkefnastýra Æsku- lýðsvettvangsins. Í lok mars sl. hélt Sema erindi um hat- ursorðræðu á netinu hjá Skátafélaginu Mosverjum. Fundurinn var vel sóttur og umræðurnar tókust vel en Sema Erla, sem þekkir hatursorðræðu á netinu af eigin reynslu, fjallaði meðal annars um mis- munandi birtingarmyndir hennar, alvöru þá sem í henni er fólgin og hugsanlegar afleiðingar. Hún segir mikilvægt að efla fræðslu og forvarnir til þess að sporna gegn vax- andi hatursorðræðu á meðal barna og ungmenna og koma í veg fyrir að þau tileinki sér slíka hegðun. Hvað er hatursorðræða? Það sem einkennir hatursorðræðu er að gerandi sendir þolanda meið- andi skilaboð til þess að niðurlægja hann, gera lítið úr persónu við- komandi og brjóta hann niður. Sambandsaðilar UMFÍ geta óskað eftir fræðslu, forvörnum eða úrvinnslu eineltismála eða hat- ursorðræðu með því að hafa sam- band við þjónustumiðstöð UMFÍ. Á heimasíðu UMFÍ er aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun. Hægt er að hafa samband við þjónustumiðstöðina og fá prentuð eintök af aðgerðaáætluninni. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir um tengd mál á netfangið aev@aev.is. Börnum stafar hætta af hatursorðræðu „Fæstir gera sér grein fyrir áhrifunum sem fáein orð á samfélags- miðlum geta haft á aðra. En ef hatursorðræða er látin óáreitt getur hún haft alvarlegar afleiðingar, bæði fyrir geranda og þolanda,“ segir Sema Erla. „Fyrstu skrefin mín í félagsmálafræðslu voru í stjórn Ungmennafélagsins Dags- brúnar. Hún skiptir máli,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis. Unnur Brá, sem fædd er árið 1974, er frá bænum Búðarhóli í Austur-Landeyjum og keppti í frjálsum á sínum yngri árum undir merkjum Ungmennafélagsins Dagsbrúnar. Hún sat í stjórn félagsins og man vel eftir því þegar hún mætti í fyrsta sinn á HSK- þing í Hveragerði. Þá var hún á 16. ári. „Félagsmálafræðslan skiptir máli,“ bæt- ir Unnur Brá við. Að loknu grunnskólanámi fór hún í Menntaskólann að Laugarvatni og hætti þá þátttöku í íþróttum eins og margir aðrir. Ljóst er að félagsmálafræðslan hafði áhrif því að Unnur Brá varð sveitarstjóri Rangárþings eystra árið 2006 og fór þaðan á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Í byrjun árs 2017 var hún svo skipuð forseti Alþingis og varð við það fjórða konan til að sitja í forsetastóli Alþingis. Fyrir sameiningu þing- deilda árið 1991 höfðu þrjár konur gegnt embætti forseta sameinaðs þings eða ann- arrar hvorrar þingdeildar. Hún er jafnframt yngsta konan til að vera kjörinn forseti Alþingis og næstyngsti þingmaðurinn til þess. Sá yngsti var Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti. Hann var kjörinn forseti sameinaðs þings 36 ára gamall árið 1930. Unnur Brá hefur oft verið gestur á þing- um HSK. Á síðasta þingi lét hún þau fleygu orð falla að ungmennafélagshreyfingin, á meðal annarra, beri ábyrgð á því hvar hún er stödd í dag. Unnur Brá telur líklegt að flestir lands- byggðarþingmenn búi að þessum grunni. Hún hafi samt ekki gert formlega könnun á því. Takk fyrir félagsmála- fræðsluna VISSIR ÞÚ ÞETTA? Langan tíma tekur að ná fyrri styrk Hér eru vondar fréttir fyrir sófakartöflurnar. Hreyfingarleysi eða lítil hreyfing í hálfan mánuð minnkar líkamsstyrk um 33%, þol fer niður um 10% og vöðvamassi rýrnar um allt að 500 grömm. Sex vikur tekur að koma líkamanum aftur í fyrra form. „Það vakti undrun okkar hvað það tekur stuttan tíma að tapa vöðvamassa og langan tíma að ná honum aftur,“ segir Andreas Vigelsø, einn þeirra dönsku vísindamanna við öldrunar- og líflækningadeild Kaupmannahafnarháskóla sem komu að rannsókninni. Rannsóknin var gerð á körlum á tveimur aldursskeiðum. Meðalaldur yngri hópsins var 21 ár en þess eldri 68 ár. Athygli vakti að hreyfingarleysi fór verr með yngri karlmenn en þá eldri. Ástæðan er talin sú að yngri menn hafa meiri vöðva- massa og þol en þeir eldri. Því dregur hraðar af þeim. Nánar á www.vorespuls.dk ... að Ungmennafélag Hrunamanna er eitt af afkastamestu ung- mennafélögunum þegar kemur að leiklist. Félagið var stofnað fyrir 92 árum og hefur á þeim árum sýnt hvorki meira né minna en 105 leikrit. (Mynd fengin af timarit.is) Vissir þú ...

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.