Skinfaxi - 01.01.2017, Page 38
38 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
2291 árf ðregalgeps &nupílsrelg ,raggulg ,relG
glerborg_logo_med_svortum_undirtexta_hrt_anramma_2014.pdf 1 13.10.2014 11:35:40
140 hestakonur halda risastóra
sýningu í maí. Ágóðinn verður
gefinn langveikum börnum
„Þegar ég fór að halda námskeið í kvennatölti
komst ég að því að því að ég var að laða eitt-
hvað fram í konunum sem þær vissu ekki að
þær byggju yfir. Það þarf kjark til að stjórna
hesti og vilja til að læra eitthvað nýtt,“ segir
tamningamaðurinn, leiðbeinandinn og
hestakonan Ragnheiður Samúelsdóttir hjá
Hestamannafélaginu Spretti.
Ragnheiður hóf fyrir ári að stýra hópi hesta-
kvenna í tölti, 80 konum hjá Hestamanna-
félaginu Spretti í Kópavogi og 60 hjá Hesta-
mannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Þann
1. maí mun allur hópurinn halda risastóra
hestasýningu. Allur ágóði af sýningunni mun
renna til Umhyggju, félags til stuðnings lang-
veikum börnum.
Ragnheiður segir tilurð kvennatöltsins
byggja á keppnisnámskeiði sem hún hélt hjá
Spretti. „Það voru svo margar konur sem komu
á námskeiðið að ég steypti því saman við
undirbúningsnámskeið fyrir töltkeppni. Ég
lagði fyrir þær hugmyndir sem ég hafði og
hópurinn varð til. Þetta er svolítið öðruvísi.
Ég vel ekki í hópinn heldur koma allir á sínum
eigin forsendum. Þetta á að vera uppbyggi-
legt,“ segir Ragnheiður og bætir við að hún
hafi komið sjálfri sér á óvart. Aðrar konur í
hópnum segja það sama.
„Þú þarft að hafa kjark til að stjórna hesti
og vilja til að læra það. Síðan þarf að tileinka
sér kjarkinn og þora að stíga inn á svæði sem
þú hefur ekki kannað áður í hestamennsku,“
segir Ragnheiður. Ljóst sé að vinnan í hópn-
um hafi svipt hulunni af hæfileikum sem
margar konurnar vissu ekki að þær byggju
yfir. Konurnar slaka á og hestarnir líka. Saman
feta því bæði knapar og hestar áður óþekktar
slóðir sem sýndar verða á hestasýningu
Spretts í maí.
„Þegar knapi og hestur slaka á og koma
saman í jafnvægi þá losnar um spennu á milli
þeirra. Þá verða allir glaðir, allt skemmtilegra
og auðveldara. Þá eru líka allir tilbúnir til að
læra eitthvað nýtt,“ segir Ragnheiður og bend-
ir á að þetta sé í raun kennsluleið og tækni til
að ná meiri árangri í gegnum umbun og gleði.
Ragnheiður Samúelsdóttir:
Það þarf
kjark til að
stjórna hesti