Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 40

Skinfaxi - 01.01.2017, Side 40
40 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Pallborðsumræður voru á ráðstefnunni föstu- daginn 7. apríl. Í pallborði voru sex: Þrír full- trúar frá VG; þeir Andrés Ingi Jónsson, Gísli Garðarsson og Bjarni Jónsson. Þá voru þar Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, og Auður Inga Þorsteins- dóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. UNGT FÓLK LÆRIR HVERT AF ÖÐRU Ekki var haft samráð við ungt fólk þegar ákveðið var að gera stórtækar breytingar á menntakerfinu, stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár og taka í notkun nýtt einkunnakerfi á samræmdum prófum í grunnskólum landsins. Ungt fólk vill hafa eitthvað um málin að segja og óskar eftir því að fulltrúar ungmennaráða fái að sitja fundi flestra nefnda innan sveitarfélaga. Þetta er á meðal þess sem fram kom á ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem fram fór á Hótel Laugarbakka í Miðfirði dagana 5.–7. apríl sl. Yfirskrift ráðstefnunnar var Ekki bara framtíðin – ungt fólk, leiðtogar nútímans. Til ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði komu tæplega 100 ungmenni víða af landinu frá ungmennaráðum félagasamtaka og sveitarfélaga. Þar ræddu full- trúar ungmennaráðanna saman og gáfu hvert öðru ráð um það hvernig þau geti komið málum sínum á framfæri. Í niðurstöðum könnunar á vegum Ung- mennaráðs UMFÍ í lok ráðstefnunnar kom fram að öll ungmennin sem komu töldu sig hafa lært eitthvað nýtt hvert af öðru. Á ráðstefnuna mættu fulltrúar ungmennaráða frá Akranesi, Borgarnesi, Hólmavík, Hvammstanga, Búðardal, Fjallabyggð, Akureyri, Norðurþingi, Fljótsdalshéraði, Fjarðabyggð, Höfn í Hornafirði, Vík í Mýrdal, Árborg, Flóahreppi, Reykjavík, Hafnar-firði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Reykja-nesbæ og Garði ásamt fulltrúum ungmennaráða félagasamtaka.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.