Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 11
SKINFAXI 11
Brennibolti æfður úti um allt
Brennibolti er íþrótt sem margir fullorðnir stunduðu í leikfimi í
barnæsku. Íþróttin hefur vaxið mikið síðustu árin og æfa nú full-
orðnir brennibolta víða um land. Virkir brennóhópar hittast reglu-
lega í Kópavogi, Hafnarfirði, Grindavík, á Blönduósi og Sauðár-
króki.
Brennóbomburnar æfar tvisvar í viku í Kórnum í Kópavogi yfir
veturinn og eru með eina opna æfingu á mánuði fyrir bæði kynin.
Æfingarnar eru ætlaðar konum 18 ára og eldri. Á Facebook-síðu
hópsins segir að allar konur séu velkomnar. Viðkomandi þurfi
ekkert að kunna, þeim sé kennt sem komi í fyrsta sinn. Hægt er
að prófa áður en ákveðið er að halda áfram.
Upplýsingar um alla brennóhópana má finna á Facebook.
Það er rík ástæða fyrir því að aldurstakmörk eru í brenni bolta.
Skot frá fullorðnum andstæðingum geta nefnilega verið hörð.
Þrátt fyrir hörkuna er brennibolti stórskemmtilegur og hlakkar
Silja mikið til að keppa aftur í greininni á næsta Landsmóti.
Nokkrir makar komu með Brennóbombunum og kepptu í ýmsum
greinum. Þeir voru að sjálfsögðu vel merktir í bak og fyrir eins
og sjá má á myndinni hér að ofan.
Viltu halda árangursríkan fund?
Einn þáttur í starfi stjórnenda er fundir, hvort heldur sem þeir eru fámennir eða fjölmennir. Fundir eru nauðsynlegir til að
skiptast á upplýsingum og leysa vandamál. Til að nýta tíma allra fundarmanna sem best er mikilvægt að gera allt í valdi
fundarstjóra til að fundurinn verði sem árangursríkastur. Til að svo verði þarf að stjórna fundunum vel.
Vondur fundur
Til að gera fundi að hreinni tímasóun er best að undirbúa
þá ekki neitt. Senda ekki út nægilegar upplýsingar. Búa
ekki til fundardagskrá. Stjórna ekki umræðunni og skrá
alls ekki niður ákvarðanir og niðurstöður sem teknar eru á
fundinum.
Góður fundur
Þetta er gott að hafa í huga til að halda árangursríkan fund.
• Skipulegðu fundinn fyrirfram.
• Undirbúðu dagskrá fundarins.
• Haltu þig við fimm meginatriði.
• Láttu væntanlega fundarmenn vita um allt sem skiptir
máli.
• Stjórnaðu umræðunni.
• Skráðu allar ákvarðanir og niðurstöður sem fram
koma.