Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 37
 SKINFAXI 37 2015 2017 16,0% 40,7% 2016 2018 8,7% 22,5% REYKINGAR MEÐAL NEMENDA Í 10. BEKK Hafa notað rafrettu Nota rafrettu daglega vinna að tóbaksfor vörnum spyrja sig hvort notk un á raf- rettum kunni hugsanlega að leiða til sígarettureykinga síðar meir. Einhverjar rannsóknir hafa bent til þess en þörf er á meiri rannsókn um hvað þetta varðar,“ segir Sigríður og bætir við að ljóst sé að forvarnir og átak í tóbaksvörnum hafi skilað góð- um árangri. Það sé ánægjulegt. „Markaðurinn er oft skrefi á undan okkur sem sinnum for- vörnum. Þegar kemur að heilsu fólks og áhrifum á þriðja aðila þá er það skoðun mín að frjáls markaður sé ekki besta lausnin. Það er vissu lega okkar, foreldra og ann arra, að velja, en mark- aður inn getur haft mikil áhrif á heilsuhegðun. Við þurfum að ákveða hvernig samfélag við ætlum að vera og vinna saman, stjórnvöld, bæjaryfirvöld, gras- rót og almenningur,“ seg ir hún. Að lokum vill Sigríður benda á að ungt fólk á Íslandi sé til fyrirmyndar og langstærsti hluti þess velji heilbrigðan lífsstíl. Það þýðir þó ekki að við getum leyft okkur að slaka á eftirliti með áhættuþáttum. Við verðum að hafa það í huga að geta tekið á nýjum veruleika áður en vandinn verður of stór. FORVARNADAGURINN var haldinn 3. október síðastliðinn. Hann er haldinná hverju hausti í flestum skólum landsins og er honum sérstaklega beint að unglingum í 9. bekk grunnskóla. Margir framhaldsskólar taka líka þátt í deginum. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, var málið hins vegar svo hug- leikið að hann leitaði til embættis landlæknis, sem tók vel í að taka við verkefnis- stjórnun dagsins í samstarfi við embætti forsetans, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu og Samband íslenskra sveitarfélaga.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.