Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI Þjálfari er einstaklingur sem börn og ungmenni líta mjög upp til. Það sem þjálfari segir getur haft mikil áhrif á iðkendur. Mikilvægt er því fyrir þjálfara að vera meðvitaða um hvað þeir segja og hvernig þeir orða hlutina. Hrós getur verið ofureinfalt en að sama skapi öflugt í því að bæta samskipti. Margar ólíkar ástæður geta verið fyrir því að gefa hrós. Hrósið þarf samt að vera einlægt og sann- færandi svo það skili sér til þess sem hrósað er. GÓÐ RÁÐ Þeir eru margir kostirnir sem fylgja því að hrósa. Eitt hrós getur breytt andrúmsloftinu í einni svipan og að sama skapi tilfinningu fólks fyrir öðrum. Hrós getur líka styrkt sam - bönd og samskipti, eflt sjálfs- traustið og aukið það til muna. Eins fylgir hrósi oftar en ekki gleði og hamingja – bæði um leið og það er veitt og það er móttekið. Væmið? Kannski. En það er satt! Alls konar hrós Sum okkar eigum það til að festast í ákveðnum hrósyrðum. Til að byrja með geta þau verið jákvæð. En með tímanum er hætt við að þau verði ofnotuð og þá missa þau marks. Dæmi um slíkt hrós er: Flott, vel gert, dugleg/ur. Hrós þarf að vera nákvæmt og við hæfi, eiga við stund og stað svo að sá sem hrósað er viti hvað er verið að hrósa fyrir. Dæmi: Þetta var góður snún- ingur. Flott hávörn. Gott hvað þú réttir vel úr ristinni. Þetta var frábær sending! Hér er verið að hrósa fyrir ákveðið atvik eða atriði. Sá sem fær hrósið veit upp á hár hvað er verið að hrósa fyrir. Gott er fyrir þjálfara að hafa í huga að hrósa ekki aðeins fyrir sigra eða afrek. Þau eru nefnilega svo ótal mörg tæki- færin sem gefast til þess að gefa hrós þótt viðkomandi sé ekki í sigurliðinu, hafi ekki bætt tíma sinn eða skorað mörg stig. Það má alltaf finna eitthvað jákvætt og uppbyggilegt til þess að koma á framfæri við iðkendur. Eitt af hlutverkum þjálfara er að koma auga á þessi atriði og benda á þau. UMFÍ hvetur þjálfara, starfsfólk og foreldra/ forráðamenn að vera jákvæðar fyrirmyndir og uppbyggileg í samskiptum við börn og ungmenni. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. HVERNIG HRÓSAR ÞÚ?

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.