Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI „Einu sinni var það þannig að við vissum lítið um afleiðingar reykinga. Núna vitum við lítið um afleiðingar af því að nota rafrettur. Það tekur tíma að rannsaka langtíma áhrif en á meðan hefur tíðni notkunar raf- rettna meðal ungmenna aukist,“ segir Sigríður Kristín Hrafnkels- dóttir, verk efnastjóri for varna- dagsins hjá embætti land- læknis. Rafrettur voru efstar á baugi á forvarnadeginum í byrjun október. Notkun þeirra hefur aukist mikið á meðal unglinga síðustu árin, þó allra mest á síðast liðnum tveimur árum. Um- ræðunni og rökum fyrir notkun þeirra má skipta í tvennt: Ann- ars vegar að þær séu leið til að aðstoða fólk við að hætta að reykja. Hins vegar notar æ fleira ungt fólk rafrettur í meiri mæli sem hugs anlegt er að sé HAFA ÁHYGGJUR AF ÞVÍ HVAÐ MÖRG UNGMENNI NOTA RAFRETTUR ekki að hætta að reykja, ef við miðum við tíðni reykinga meðal þess hóps. Embætti landlæknis hefur greint frá því að sú notk un valdi áhyggjum þar sem ekki er vitað um áhrif notkun arinnar á heilsu til lengri tíma og hvort hún geti leitt til ann arrar tóbaks- notkunar síðar á ævinni. Rafrettur eru tiltölulega nýjar af nálinni. Þær komu fyrst á markað í Kína árið 2004 og notkun þeirra hefur aukist mikið á þeim 14 árum sem liðin eru frá því að þær litu dagsins ljós. Spurt var um raf rettunotkun í könnunum Rann sóknar og grein- ingar í fyrsta sinn árið 2015. Þar kom fram að tæplega 17% nemenda í 10. bekk höfðu not- að rafrett ur og 14,9% reykt tóbak. Í síðustu könnun hafði dregið nokkuð úr tóbaksreyking- um. Rafrettunotkun hafði hins veg ar stóraukist og höfðu 40,7% nemenda í viðkomandi Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, verkefnastjóri forvarnadagsins hjá embætti landlæknis. bekk notað rafrettur einhvern tíma, þar af 10,2% daglega. Nemendur í 10. bekk grunn- skóla voru 4.117 talsins í lok árs 2017, samkvæmt upplýs- ingum Hagstof unnar. Miðað við upplýsing arnar hér að framan hafa um það bil 1.676 ungmenni í 10. bekk notað rafrettur ein hvern tíma. Þar af nota um það bil 420 einstakl- ingar raf rettur daglega. Sigríður segir þessa auknu notkun á rafrettum valda áhyggjum þar sem ekki sé vit- að um áhrif hennar á heilsu til lengri tíma og hvort hún muni leiða til annarrar tóbaksnotkun- ar. „Þegar rafrettur komu fyrst á markað var litið til þeirrar lausnar sem jákvæðan valkost fyrir þá sem vildu venja sig af sígarettureykingum. Þeir sem Nýjar upplýsingar benda til að mörgum sinnum fleiri ungmenni noti nú rafrettur en áður. Verkefnastjóri forvarnadagsins segir markaðinn búa til nýjar áskoranir sem þörf sé á að takast á við. Framtíðin sé undir samtakamætti innan samfélagsins komin.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.