Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI Unglingalandsmót UMFÍ var haldið í Þorlákshöfn um verslunarmanna- helgina 2.–5. ágúst. Þetta var í 21. sinn sem mótið er haldið. Mótið hefur verið haldið á Vesturlandi, Norðurlandi, Austurlandi og SA- landi síðastliðin fimm ár og ekki jafn nálægt höfuðborgarsvæðinu síðan það var haldið á Selfossi árið 2012. Keppendur voru 1.279 talsins á aldrinum 11–18 ára og er það nokkuð góð þátttaka í öllum greinum. Veðrið lék mótsgesti grátt á fyrsta degi og varð því að fresta setningu mótsins um einn dag. Alla helgina, að fyrsta mótsdegi undanskildum, var hins vegar brakandi blíða. Jákvæðu fréttirnar eru þær að greinar eins og bogfimi voru færðar út, bæði vegna þess hversu gott veðrið var en ekki síður vegna þess hve margir voru skráðir til leiks. Strandhandboltinn gríðarlega vinsæll Frábærir sjálfboðaliðar sem hafa lagt mikið á sig „Þetta var æðislegur dagur. Þorlákshöfn var iðandi af lífi og fjöri. Það var frábært að sjá heilu fjölskyldurnar saman að njóta lífsins í sólinni á mótinu,“ sagði Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri UMFÍ, þar sem hún ásamt Hauki Valtýssyni, formanni UMFÍ, fylgdist með strandhandbolta, einni af nýju vinsælu greinunum á Unglingalandsmótinu. Auður sagðist vera í skýjunum með mótið. „Þetta er að mestu leyti að þakka öllum frábæru sjálfboðaliðunum sem hafa lagt mikið á sig til að gera gott mót ennþá betra.“ Unglingalandsmótið í Þorlákshöfn

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.