Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 31
SKINFAXI 31
„Kvíði er eðlileg tilfinning sem
allir upplifa. En við teljum að
svefn sé mjög góður gegn
kvíða og það er okkar ráð að
ungmenni sofi meira og betur,”
segir Alma D. Möller landlæknir.
Niðurstöður könnunar Rann-
sóknar og greiningar benda til
að ungmenni finni til meiri kvíða
en áður. Kvíði hjá stúlkum hefur
aukist sérstaklega mikið. Kvíð-
inn er talinn tengjast mikilli
notkun samfélagsmiðla og litl-
um svefni en samtímis því að
kvíði hefur aukist sofa 40% ung-
menna minna en sjö klukku-
stundir á hverri nóttu.
Embætti landlæknis hefur
mælt fyrir því að ungmenni sofi
í níu klukkustundir á hverjum
sólarhring eða tveimur klukku-
stundum lengur en sumir ungl-
ingar sofa.
Fram kom á blaðamanna-
fundi forvarnadagsins í byrjun
október að sumt ungt fólk þurfi
að taka nauðsynleg lyf til að
takast á við kvíða. Alma segir
kvíða eðlilegan þegar tekist er
á við nýjar eða ófyrirséðar að-
stæður og mælir með því að
ungt fólk, sem finni til kvíða, nýti
sér bjargráð eins og góðan
svefn, hugleiðslu eða samtal
við vin eða foreldra til að tak-
ast á við tilfinninguna. Gangi
það ekki mælir hún með því
að leita til sérfræðings, sál-
fræðings, náms- eða félags-
ráðgjafa eða hjúkrunarfræð-
ings í stað þess að leita í lyf-
seðilsskyld lyf sem jafningjar
mæli með í stað sérfræðinga.
„Ég ráðlegg fullorðnum að
passa svefn barna sinna og
leita til fagaðila verði kvíðinn
hamlandi,” segir landlæknir.
Alma D. Möller landlæknir með þeim Guðna Th. Jóhannessyni,
forseta Íslands, og Margréti Sigfúsdóttur, skólastjóra Réttarholts-
skóla, en þar var blaðamannafundur um forvarnadaginn haldinn.
Gott að sofa meira Árið 2016 sváfu rúmlega
38% pilta og 43% stúlkna
um sjö klukkustundir eða
minna á hverri nóttu.
FORVARNADAGURINN
PILTAR
38%
STÚLKUR
43%
EINKENNI KVÍÐA FRÁ 2003 TIL 2016.
MEÐALTAL FYRIR STÚLKUR OG PILTA
Í 9. OG 10. BEKK
Stúlkur Piltar
3,4% 1,6%