Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 36
36 S K I N FA X I Börn í Grunnskólanum á Þórshöfn með verðlaunaávísun sem þau fengu fyrir að bera sigur út býtum í Hreyfiviku UMFÍ og Kristals í sumar. Ölgerðin gaf verðlaunafé í Hreyfiviku UMFÍ. Verðlaunahafarnir þurftu að tilnefna góðgerðafélag sem þeir gáfu svo verðlaunaféð. „Börnin voru mjög ánægð og þeim fannst það ægilegt sport að halda á ávísuninni. Þeim fannst hún svo stór,“ sagði Hulda Kristín Bald- ursdóttir, íþróttakennari við Grunnskólann á Þórshöfn. Nemendur og skólastjórnendur fengu loks í byrjun desember afhenta ávísun fyrir verðlaunafé sem þau báru úr býtum í Hreyfiviku UMFÍ og Kristals er fram fór í lok maí sl.. UMFÍ og Kristall efndu til sérstakrar brenniboltaáskorunar í Hreyfi- vikunni. Hún fólst í því að kennarar í grunnskólum landsins voru hvattir til að bjóða nemendum í brennibolta og auka almennt framboð á skemmtilegri hreyfingu. Á vegum Grunnskólans á Þórshöfn voru skráð- ir 17 viðburðir í Hreyfiviku UMFÍ í maí og voru þeir hvergi fleiri. Skólinn fékk í verðlaun 100.000 króna ávísun frá Kristal og UMFÍ. Vinningnum fylgdu þeir skilmálar að verðlaunin skyldi gefa góðgerða- félagi að eigin vali. Nemendur Grunnskólans á Þórshöfn ákváðu í sam- ráði við kennara að gefa Velferðarsjóði Þingeyinga verðlaunin. Jónas Egilsson, formaður Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ) og Börn á Þórshöfn stóðu sig vel í Hreyfiviku UMFÍ Hvað er Hreyfivika UMFÍ? Hreyfivika UMFÍ er hluti af samevrópsku lýðheilsuherferðinni Now We Move. UMFÍ hefur tekið þátt í verkefninu frá árinu 2012. Markmið verkefnisins er að að fjölga þeim sem hreyfa sig reglulega og kynna fyrir fólki kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu á hverjum degi. UMFÍ hvetur alla til að finna uppáhaldshreyfingu sína og stunda hana reglulega, í að minnsta kosti 30 mínútur daglega. Þú finnur allar upplýsingar um Hreyfiviku UMFÍ á vefslóðinni www.hreyfivika.is Fleiri fá glaðning Tveir skólar voru dregnir út og áttu þess kost að gefa glaðn- inginn til góðgerðafélags. Fellaskóli í Reykjavík og Grundaskóli á Akranesi voru dregnir sérstaklega út í brenniboltaáskoruninni. Hvor skóli hlaut 50.000 króna ávísun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals sem þeir munu ánafna góðgerðafélagi. COVID-faraldurinn olli því að verðlaunin voru ekki afhent í sumar. Líklegt er að það verði gert í lok árs eða eftir því sem samkomutakmarkanir breytast. Tásurölt í mjúkum sandi á Djúpavogi í Hreyfiviku UMFÍ. Fjör í íþróttasalnum á Reyðarfirði.Pýramídi rís á Þórshöfn. sveitarstjóri Langanesbyggðar, afhenti verðlaunin og ávísunina fyrir hönd UMFÍ Viðstaddar afhendinguna voru þær Hulda íþróttakennari og Hilma Steinarsdóttir skólastjóri. Nemendur skólans fengu svo að sjálfsögðu að handleika ávísunina. Líf og fjör í Hreyfivikunni á Selfossi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.