Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 28
28 S K I N FA X I Mikilvægt að takast á við áskoranir Við áramót eru oft góð tímamót til að fara yfir og uppfæra hitt og þetta. Stefna er gott dæmi um það. Nauðsynlegt er að endurmeta stefnuna reglulega, nota það sem til er fyrir annan hring stefnumótunar. Stefnu- mótun felur í sér að skilgreina áttina sem halda skal í – að finna leiðina inn í framtíðina og skilgreina það sem þarf að gera til að komast þangað. Hægt er að skilgreina stefnumótun sem ákveðið ferli sem samanstend- ur af gildum, hlutverki, framtíðarsýn, markmiðum og aðgerðum. Stjórnendur félagasamtaka standa frammi fyrir margvíslegum áskor- unum og tækifærum sem tengjast breyttum þörfum einstaklinga, kyn- slóðabreytingum, tæknibreytingum, breytilegum kostnaði og aukinni samkeppni um fjármagn, svo að nokkrir þættir séu nefndir. Hægt er að nálgast stefnumótunarvinnu á marga mismunandi vegu, allt eftir því hversu ítarleg og víðtæk hún á að vera. Það eina sem hægt er að vera viss um er að félagasamtök þurfa að takast á við margs konar breytingar „Ef búið er að marka leiðina er líklegra að einstaklingar vilji fylgja henni. Þeir sjá að fram undan er verðugt mark- mið að stefna að.“ Jóhann Steinar Ingimundarson, í stjórn UMFÍ. Stefna UMFÍ, Samfélaginu til góða, kom út árið 2017 og gildir til ára- móta 2020. UMFÍ hefur því hafið undirbúning að endurnýjun hennar. Við vinnu stefnunnar 2017 var hlustað á grasrótina og ungmenni lands- ins fengu tækifæri til þess að koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri. Við endurnýjun á stefnunni ætla samtökin áfram að taka með skoðanir grasrótarinnar og ungmenna landsins. UMFÍ telur mikil- vægt að ungmenni fái tækifæri til að koma skoðunum sínum á fram- færi og hafi skoðun á því hvernig UMFÍ vinnur með mál sem hugsuð eru fyrir þau. Einnig þarf að opna augu þeirra, sem eldri eru, fyrir því að ungt fólk veit best hvað hentar ungu fólki og hverju ungt fólk hefur áhuga á. Stjórnarskipti í félögum eru gjarnan tíð og alltaf koma fram nýir árgangar ungmenna. Mikilvægt er því að bjóða reglulega og oft upp á samtöl ungmenna og stjórnenda. Ungmennaráð UMFÍ mun koma að verkefninu með stuðningi frá starfsfólki og stjórn UMFÍ. Það er von UMFÍ að ungt fólk upplifi, skynji og sjái í verki að raddir þess séu mikilvægar, að hlustað sé á það og tekið sé mark á því sem ungt „Ungt fólk er ekki einungis framtíð landsins heldur þau sem skapa og móta nútíðina.“ Ástþór Jón Ragnheiðarson, formaður ungmennaráðs UMFÍ. Samfélaginu til góða „Fundurinn tókst ákaf- lega vel og gaf aðal- stjórn félagsins mikið og gott efni til þess að taka næstu skref í stefnu- mótun í markaðs- og kynningarmálum, sem og afreksmálum félagsins.“ Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri UMFF. Ungmennafélagið Fjölnir stóð fyrir fjölmennum stefnumótunarfundi í gegnum Facebook Live-síðu sína þann 17. október sl. Breyttir tímar kalla á breytt vinnubrögð. Vegna heimsfaraldurs COVID-19 var ákveðið að nýta tæknina sem best. Þátttakendur, sem voru félagsmenn, iðkend- ur og forráðamenn, voru hvattir til að koma saman í 2–6 manna hópum og deila hugmyndum, spurningum og/eða athugasemdum í gegnum athugasemdakerfið sem notað var. Tvö málefni voru rædd þar sem þátttakendum gafst tækifæri að koma að nýrri stefnumótun, annars vegar í markaðs- og kynningarmálum og hins vegar í afreksmálum. Þátttaka var mjög góð, eða vel á annað hundrað manns, og urðu miklar og góðar umræður. Gunnar Jónatansson stýrði fundinum. Hugsað í lausnum til lengri eða skemmri tíma. Til að breytingar skili þeim árangri sem þeim er ætlað er nauðsynlegt að undirbúa þær mjög vel. fólk hefur fram að færa. UMFÍ skorar á forystufólk sambandsaðila að hvetja ungmenni til þátttöku sem og að mæta á fyrirhugaða stefnu- mótunarhittinga sem auglýstir verða innan tíðar. Takk fyrir stuðninginn & Sími: 587 3757

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.