Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 12
12 S K I N FA X I • Sportabler er sprotafyrirtæki sem stofnað var árið 2017. • Sportabler hjálpar stjórnendum íþróttafélaga við að skipuleggja starfið, taka við greiðslum og skráningum og eiga í samskiptum við þjálfara og foreldra. • Notendur eru um 70 þúsund. • Stofnendur eru þeir Markús og Jóhann Ölvir Guðmundsson. Jóhann býr á Íslandi en Markús er hér með annan fótinn því að fjölskylda hans býr í Þýskalandi. Viðtalið við Markús var einmitt tekið þegar hann var nýkominn til Þýskalands fyrir jólin. Forritarar eru bæði á Íslandi og í Úkraínu. • Þegar fyrirtækið var að stíga fyrstu skrefin var þarfapíramídi íþróttastarfsins skilgreindur. Þar kom í ljós að mesta þörfin snýr að rekstri, skipulagi, umsýslu, innheimtu, stjórnun og samskiptum. • Markús sagði í samtali við Viðskiptablaðið í október 2020 íþróttahreyfinguna drifna áfram af fólki fullu af eldmóði sem brenni fyrir íþróttum og vilji hjálpa iðkendum til að komast hærra og lengra. Á sama tíma einkenni það grasrótarstarfið að þar sé skortur á fjármagni, tækjum og tólum. „Sjálfboðaliðar, þjálfarar og starfsfólk eiga það til að hnoðast áfram á grunnþrepi þarfapíramídans, og þeim tekst því ekki að sinna efri þrepum eins vel og þau vildu. Keppikefli okkar undanfarin ár hefur því verið að nýta tæknina og ráðast á margar þær hindranir sem koma fyrir aftur og aftur og draga úr hraðari framþróun innan íþróttahreyfingarinnar.“ Framkvæmdastjóri Sportabler segir sameinað lausna- framboð Sportabler og Nóra geta veitt íþróttafélögum, sveitarfélögum og háskólasamfélaginu verðmætar upplýsingar um stöðu íþróttastarfs. „Við höfum verið að færa stjórnendum íþróttafélaganna þessar fréttir og fengið gríðarlega góð viðbrögð. Stjórnendur félaganna eru líka mjög sáttir við að fá eitt gott kerfi til að vinna með,“ segir Markús Máni Michaelsson Maute, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Sportabler. Fyrirtækin Greiðslumiðlun og Abler hafa náð samkomulagi um að samtvinna lausnaframboð sitt á sviði hugbúnaðar fyrir íþrótta- og tóm- stundastarf. Þetta hefur í för með sér að Nórakerfið og Sportabler verða sameinuð í einu fyrirtæki. Markmiðið er að bæta þjónustu við viðskipta- vini í einu öflugu þjónustu- og hugbúnaðarfyrirtæki. Vinna betur saman Markús segir sameininguna eiga sér þó nokkurn aðdraganda, enda hafa báðir aðilar lengi vel séð mikil tækifæri í því að starfa saman. „Við höfum öll mikinn metnað og áhuga á skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þetta skref gerir okkur kleift að hugsa stærra og þróa frekari virðisaukandi lausnir til að þjónusta félögin og styðja við það samfélagslega mikilvæga starf sem unnið er innan hreyfingarinnar á hverjum degi. Það má einnig segja að á vissan hátt séum við að bregð- ast við ákalli markaðarins um heilstætt þjónustuframboð og „eitt kerfi“ til að vinna með. Starfsmenn sameinaðra fyrirtækja munu næstu daga og vikur vinna að því að samþætta lausnirnar og verða breytingar kynntar síðar. Sameining opnar mikla möguleika Markús er mjög spenntur fyrir þessum breytingum. „Það er gríðarleg reynsla og þekking í Nóra og meðal fólksins sem að honum stendur – ég hef því verið að meðtaka mikið undanfarna daga. Fólk er kannski farið að gleyma því hvað Nórakerfið var í raun mikil bylting fyrir íþróttafélögin þegar skráningarkerfið kom til sögunn- ar. Með tilkomu Nóra urðu ákveðin vatnaskil í því hvernig skráningar- og innheimtumálum er háttað hjá íþróttafélögum. Söguleg gögn sýna að skráningar og tekjur af æfingagjöldum hækkuðu um 15−25% hjá félögunum eftir að Nóri kom til sögunnar. Þessa auknu tekjur hafa félögin getað nýtt til rekstrar og fjárfestingu í þjónustu og innviðum,“ segir Markús Máni. „Við hjá Sportabler höfum lagt áherslu á að þjónusta þjálfara, iðkend- ur og foreldra með notendavænum lausnum sem tengja hagsmuna- aðila saman með gagnvirkum snertifleti. Mælingar sýna að appið er í afar tíðri notkun hjá fólki sem eflir starfsumhverfið til muna. Þessi sam- eining opnar á ótal möguleika í framtíðinni. Það má áætla að í samein- Sportabler og Nóri sameinast í einstökum hugbúnaði ingu þjónustum við yfir 95% af íþróttaiðkun barna- og unglinga á Íslandi. Við sjáum mikil tækifæri til að fara dýpra í þjónustuna og verð- um fær um að veita afar góðar upplýsingar um þróunina í skipulögðu íþróttastarfi, sem bæði starfsfólk sveitarfélaga, stjórnendur íþrótta- félaga og háskólasamfélagið getur nýtt sér á marga vegu,“ segir Markús Máni og hvetur til samvinnu við sem flesta hagsmunaaðila innan hreyfingarinnar um þetta verkefni. „Í raun getum við veitt íþróttahreyfingunni og þeim sem vilja rann- saka stöðuna upplýsingar nokkurn veginn á rauntíma á t.d. nýliðun eða brottfalli, kallað fram stöðu eftir póstnúmerum og séð til hvaða hópa þarf að ná betur. Þá getum við líka séð hvað virkar og hvað virkar ekki, hvaða umgjörð og aðferðafræði heldur iðkendum lengur í íþróttum, eða hvað kann að leiða til þess að iðkendur hætta. Íþrótta- og tóm- stundastarf er samfélaginu gríðarlega verðmætt og nú getum við verið enn gagnadrifnari í allri framþróun, samvinnu og miðlun þekkingar. Samhliða þessu vinnum við hörðum höndum að nýrri og spennandi þjónustu sem við munum kynna fyrir félögum á næstu misserum.“ Markús Máni Michaelsson Maute, framkvæmdastjóri Sportabler. • Nóra-kerfið kom á markað 2011. Það er hannað og smíðað af starfsfólki með mikla reynslu af starfsemi íþróttafélaga. • Nóri auðveldar uppsetningu námskeiða, m.a. íþróttafélaga, og utanumhald um þau, s.s. skráningu þátttakenda, inn- heimtu gjalda og uppgjör. • Greiðendur skrá sjálfir allar upplýsingar og ganga frá greiðsl- um. Hægt er að velja greiðslumáta, þ.e. hvort greitt er með greiðslukorti eða hvort greiðslukrafa er send í heimabanka. • Beintenging er við frístundakerfi sveitarfélaga. • Hægt er að bæta vefsölu við Nóra og selja m.a. fatnað, miða á leiki og margt fleira.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.