Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.03.2020, Blaðsíða 33
 S K I N FA X I 33 Sjálfboðaliðar koma að öllu starfi okkar og gæða það lífi „Við hjá HSK erum ótrúlega lán- söm og þakklát fyrir okkar frá- bæru sjálfboðaliða. Þeir koma að öllu starfi okkar og gæða það lífi og sál. Dæmi um verkefni og við- burði, sem bornir eru uppi af sjálf- boðaliðum ár hvert á þessum árs- tíma, er aðstoð við störf jólasvein- anna. Vaskir sjálfboðaliðar hafa aðstoðað sveinana við að koma út pökkum til fjölskyldna á aðfangadag sem og að gleðja börnin í aðdraganda jólanna. Verkefni, sem gætu ekki farið fram án aðkomu sjálfboðaliða, er framkvæmd héraðsmóta og stærri móta á landsvísu. Næsta stóra verkefni okkar er framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ á Selfossi um næstu verslunarmannahelgi. Að því vinnur frábær hópur sjálfboðaliða sem mun án efa framkvæma mótið með glæsibrag,“ segir Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK. 270.000 Íslendingar eru félagsmenn í a.m.k. einu íþróttafélagi sem er innan UMFÍ. Öfluga sjálfboðaliða er að finna í öllum íþróttahéruðum og félögum um land allt. UMFÍ fékk sendar upplýsingar um nokkra þeirra. Hópurinn hefur séð til þess að fólk hefur getað horft á viðburði „Íþróttabandalag Akraness hrósar og þakkar þeim hópi fólks sem stendur á bak við ÍATV fyrir óeigin- gjarnt starf í þágu íþrótta og mannlífs á Akranesi. Hópurinn hefur séð til þess að fjöldi fólks hefur getað horft á ýmsa íþróttaviðburði hjá aðildar- félögum ÍA. Allar útsendingar eru unnar í sjálfboðavinnu og þessi hópur er alltaf tilbúinn til að koma og taka upp ef eitthvað stendur til hjá félögum okkar. ÍATV byrjaði með formlegar útsendingar á körfuboltaleikjum sem síðar vatt upp á sig. Þeim, sem að þessu stóðu, var líka mikið í mun að koma öllum leikjum hjá knattspyrnukonum Akranes í loftið til þess að auka áhorf og umfjöll- un um kvennaknattspyrnu á Akranesi. Þetta hefur stækkað allmikið og hefur gert alla umfjöllun og umgjörð íþrótta og annarra viðburða á Akranesi svo miklu meiri og skemmtilegri,“ segir Guðmunda Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri ÍA. Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK. Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA. Vissir þú að … innan UMFÍ eru 28 sambandsaðilar sem skiptast í 21 íþróttahérað og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ. innan íþrótta- og ungmenna- félagshreyfingarinnar eru um 6.100 sjálfboðaliðar sem sitja í stjórnum félaga og deilda. Það eru um tvær fullar Laugardalshallir eða sem samsvarar íbúafjölda á Grundarfirði, í Stykkishólmi, á Blönduósi og í Þorlákshöfn – til samans!

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.