Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.2021, Qupperneq 25

Skinfaxi - 01.01.2021, Qupperneq 25
 S K I N FA X I 25 Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og UMFÍ. Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginleg- um hagsmunamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðs- starfi og leggur áherslu á að skapa heilbrigðar, uppbyggjandi, vandaðar og öruggar aðstæður í slíku starfi, meðal annars með fræðslu og forvörnum og hefur, svo að dæmi sé tekið, haldið ráð- stefnur og námskeið um neteinelti og hatursorðræðu. Þátttaka í skipulögðu tómstundastarfi sem forvörn Sú upplifun að tilheyra hópi er oftar en ekki úrslitaatriði þegar kemur að því hvort ungt fólk tileinki sér ofbeldisfulla öfgahyggju og gangi til liðs við og taki þátt í starfsemi öfga- og hryðjuverkasamtaka. Þátttaka í skipulögðu tómstundastarfi veitir ungu fólki tækifæri til þess að mynda og viðhalda jákvæðum félagslegum tengslum við jafningja sína og tilheyra hópi þar sem þátttakendur geta lært hver af öðrum, stutt hver annan og jafnvel myndað sambönd byggð á trausti, samvinnu og gagnkvæmri virðingu. Þátttaka í skipulögðu tómstundastarfi getur því uppfyllt þá þörf sem unga fólkið hefur fyrir að tilheyra hópi og því ætti í allri forvarnavinnu gegn ofbeldisfullri öfgahyggju ungs fólks að leggja áherslu á þátttöku í tóm- stundum til að koma í veg fyrir að ungt fólk gangi til liðs við öfgahópa eða hryðjuverkasamtök í þeirri leit. Takk fyrir stuðninginn

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.