Skinfaxi - 01.01.2021, Side 42
42 S K I N FA X I
Íþrótta-, æskulýðs- og tóm-
stundastarf barna í leik- og
grunnskólum heimilt á ný bæði
inni og úti. Slakað á grímu-
skyldu yngstu barna og kennara
þeirra. Sundlaugar enn lokaðar og íþróttir
fullorðinna liggja enn niðri. Opnað fyrir
umsóknir á sérstökum íþrótta- og tóm-
stundastyrkjum fyrir börn frá tekjulágum
heimilum.
Engar breytingar gerðar á sam-
komutakmörkunum. Íþróttastarf
barna enn heimilt úti og inni.
Frumvarpi um stuðning
við launakostnað íþrótta-
félaga útbýtt á Alþingi.
Afreksíþróttafólk og
iðkendur í efstu deildum sér-
sambanda ÍSÍ fá að æfa með og
án snertingar. Ungmenni fá enn
ekki að æfa.
Stjórn Íslenskra getrauna
ákveður að úthluta 50,3
milljónum króna til afreks-
deilda í knattspyrnu, körfu-
knattleik og handknattleik.
Að auki er ákveðið að úthluta
10 milljónum til söluhæstu félaganna.
Frumvarp til laga um greiðslur
til íþróttafélaga vegna launa-
kostnaðar og verktakagreiðslna
vegna Covid-faraldursins
samþykkt á Alþingi.
Íþróttaæfingar og annað
starf barna og fullorðinna
heimilað að nýju með
og án snertingar, að upp-
fylltum skilyrðum. Leyft að
keppa í íþróttum án áhorfenda.
Félagsmálaráðuneytið kynnir
myndbönd á fjölmörgum
tungumálum til þess að vekja
athygli á sérstökum íþrótta-
og tómstundastyrkjum fyrir börn
sem búa á tekjulægri heimilum.
Stjórnvöld tilkynna að
þau ætli að úthluta 50
milljónum króna til
sértækra aðgerða til að
styðja við starf æskulýðs-
félaga sem raskast hefur verulega vegna
afleiðinga sóttvarnaráðstafana.
Stjórn HSK greiðir
aðildarfélögum sínum
og sérráðum ákveðna
aukagreiðslu í ljósi góðrar
fjárhagsafkomu sambandsins,
vegna þeirra aðstæðna sem eru í sam-
félaginu vegna Covid-19. Upphæðin
nemur 2,2 milljónum króna eða sem
nemur öllum hagnaði HSK árið 2020.
Vinnumálastofnun opnar
fyrir umsóknir vegna endur-
greiðslu launakostnaðar og
verktakagreiðslna á tímum
Covid-faraldursins.
Stjórn UMFÍ tilkynnir að sá
frestur sem sambandsaðilar
hafa til þess að nýta og
sækja styrki, sem sjóðs-
stjórnir fræðslu- og verk-
efnasjóðs og umhverfissjóðs
hafa úthlutað, verði framlengdur um
eitt ár. Alla jafna hafa styrkhafar
12 mánuði til að sækja um styrkina.
Áhorfendur eru aftur
leyfðir á íþróttaviðburð-
um, í fyrsta sinn frá því
í október 2020.
Frestur til að sækja um
sérstakan styrk fyrir börn
frá tekjulágum heimilum,
sem eiga rétt á sérstökum
íþrótta- og tómstundastyrk
á skólaárinu 2020–2021, er fram-
lengdur til 15. apríl 2021.
Stjórnvöld kynna hertar
aðgerðir vegna út-
breiðslu breska
afbrigðis kórónuveir-
unnar. Allt íþróttastarf inni
og úti fellur niður á landsvísu til 15. apríl
2021. Um er að ræða sömu aðgerðir
og tóku gildi 31. október 2020.
Stjórnvöld kynna
aðgerðir til að fjölga
atvinnutækifærum
atvinnuleitenda og náms-
manna sumarið 2021.
Verkefnið er eins og klæðskera-
sniðið fyrir starfsemi íþróttafélaga
og annarra frjálsra félagasamtaka.
Allt íþróttastarf kemst
í gang að nýju með
ákveðnum takmörkun-
um. Fjöldatakmarkanir
fara í 10 í 20. Nálægðar-
mörk stytt úr 2 metrum í 1 metra
í skólum.
UMFÍ tilkynnir að
Landsmót UMFÍ 50+
fari fram í Borgar-
nesi dagana
27.–29. ágúst 2021.
Kórónuveirufaraldurinn hefur nú sett mark sitt á allt íþróttastarf í meira en ár. Í fyrrahaust lá allt íþróttastarf meira eða minna
niðri. Eftir áramótin fór baráttan gegn Covid-veirunni að léttast. Við höfum birt tímalínur yfir þróun veirunnar frá upphafi
síðasta árs í síðustu tölublöðum. Nú höldum við áfram með þróun mála frá í nóvember 2020.
18. nóv
2020
1. des
2020
2. des
2020
10. des
2020
15. des
2020
18. des
2020
13. jan
2021
15. jan
2021
18. jan
2021
29. jan
2021
16. feb
2021
23. feb
2021
1. mars
2021
24. mar
2021
13. apr
2021
15. apr
2021
16. oapr
2021
21. jan
2021
Covid-19
Áhrifin frá seinni hluta árs 2020 til vors