Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.2022, Page 4

Skinfaxi - 01.03.2022, Page 4
4 S K I N FA X I V ið stöndum á tímamótum, við þrösk- uld liðins árs og við upphaf þess nýja, með fullt af óteljandi tækifærum. Þar sem tíminn er takmarkaður þurfum við að velja og hafna og velja þær leiðir sem skila okkur lengra fram á veginn. Árið 2022 hefur verið krefjandi og áhuga- vert og reynt á ýmsa þætti í starfi okkar. Við héldum áfram að koma okkur í gegnum farald- urinn og eftirhreytur hans. En við erum fjarri því að hafa verið ein í þeirri stöðu. Í samskipt- um okkar á alþjóðavettvangi urðum við þess áskynja að frjáls félagasamtök á heimsvísu glímdu við sambærileg eða verri eftirköst heimsfaraldursins. Þótt sóttvarnaraðgerðum hafi víða verið aflétt á fyrri hluta árs hefur hegð- un fólks breyst. Jafn erfitt og það var að draga sig í hlé við upphaf faraldurs og huga að sér og sínum var eftirleikurinn heldur ekki léttur. Lifandi og áður vinsælir mannfögnuðir urðu nú fámennari og þátttaka í viðburðum minni en væntingar stóðu til. Þessu hafa kollegar okkar bæði hér á landi og í öðrum löndum fundið fyrir. Þátttaka fólks í viðburðum samfélagsins skiptir máli. Hún skiptir ekki einungis máli fyrir félögin okkar heldur ekki síst fyrir einstakling- ana sjálfa, fólkið sem myndar félögin. Það er í samskiptunum og samverunni sem allt verður til. Þar eru kraftar sem við í ungmennafélags- hreyfingunni og víðar tökum eftir og höfum unnið að því að beisla. Allt verður einhvern veginn betra og skemmtilegra þegar fleiri vinna saman. Fyrir þremur árum bættust Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþróttabandalag Akureyrar og Íþróttabandalag Akraness við UMFÍ. Nú í vet- ur bættist Íþróttabandalag Hafnarfjarðar í rað- irnar og eru þá öll íþróttafélög á höfuðborgar- svæðinu aðilar að UMFÍ. Til viðbótar flutti þjónustumiðstöð UMFÍ inn í Íþróttamið- stöðina í Laugardal. Þar er stærstur hluti íþróttahreyfingarinnar undir einu þaki – ÍSÍ, UMFÍ, ÍBR og UMSK auk fjölda sérsambanda. Samstarfið og samvinnan innan íþróttahreyfingarinnar er vax- andi. Krafturinn er mikill og við bindum vonir við að hann muni aðeins aukast og gera gott starf enn betra. Margt í starfi íþrótta- hreyfingarinnar þarf að þróast og breytast. Þar á meðal er uppbygging íþróttahéraða, tilgangur þeirra og hlutverk. Í íþróttalögum er kveðið á um að eitt héraðssamband eða íþróttabanda- lag skuli vera í hverju íþróttahéraði. Íslandi er í dag skipt upp í 25 íþróttahéruð með sjö íþróttabandalögum og átján héraðssambönd- um og er þeim ætlað að vinna að fjölbreyttum hagsmunamálum íþrótta- og ungmennafélaga á hverju svæði. Íþróttahéruðin voru mörg stofnuð á öðrum og þriðja áratug tuttugustu aldar og standa þau óbreytt síðan þá. Hlutverk þeirra hefur staðið óhaggað frá fyrsta degi. Unnið er að eflingu þeirra, skarpara hlutverki og að finna leiðir til að þau þjóni vel iðk- endum og félögum í samtímanum. Að leiðaralokum vil ég nota tæki- færið og óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Setjum okkur markmið um aukna hreyfingu og drögum okkar nán- ustu með. Bætt lýðheilsa skiptir máli og með því að huga að henni verðum við sterkari saman, samfélaginu til góða. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ Efnisyfirlit 14 Nærmynd af Valdimari Gunnarssyni 34 Skautaíþróttin springur út 38 Fólk hreyfir sig af því að það er gaman – verkefnið Virkni og vellíðan Leiðari Sterkari saman á nýju ári 22 Öflug og samræmd íþróttahéröð 6 Heimsókn fyrrverandi stjórnarfólks UMFÍ 8 Hvetur fólk til að lesa viðbragðs- áætlunina 10 Vigdís tekur við Æskulýðsvettvanginum 11 Skoppbolti er heitasta greinin vestanhafs 12 Frítími eldra fólks er miklu meiri en ungmenna 20 Hver og einn þarf að upplifa það að tilheyra samfélaginu 21 Fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni 25 Hafnfirðingar bætast við UMFÍ 26 Gera gott starf betra – Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ 28 Börnin þurfa að leika sér oftar út á götu – alþjóðleg ráðstefna ISCA í Brüssel 30 Tvö spennandi mót sumarið 2023 – Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki – Landsmót UMFÍ 50 + í Stykkishólmi 40 Gerir íþróttafélagið þitt gagn? 41 Gamla myndin: Mót verður til 42 Hvað er að frétta: Leiðtoganámskeið í reiðhöllinni

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.