Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 4
4 S K I N FA X I
V ið stöndum á tímamótum, við þrösk-
uld liðins árs og við upphaf þess nýja,
með fullt af óteljandi tækifærum. Þar
sem tíminn er takmarkaður þurfum við að velja
og hafna og velja þær leiðir sem skila okkur
lengra fram á veginn.
Árið 2022 hefur verið krefjandi og áhuga-
vert og reynt á ýmsa þætti í starfi okkar. Við
héldum áfram að koma okkur í gegnum farald-
urinn og eftirhreytur hans. En við erum fjarri
því að hafa verið ein í þeirri stöðu. Í samskipt-
um okkar á alþjóðavettvangi urðum við þess
áskynja að frjáls félagasamtök á heimsvísu
glímdu við sambærileg eða verri eftirköst
heimsfaraldursins. Þótt sóttvarnaraðgerðum
hafi víða verið aflétt á fyrri hluta árs hefur hegð-
un fólks breyst. Jafn erfitt og það var að draga
sig í hlé við upphaf faraldurs og huga að sér
og sínum var eftirleikurinn heldur ekki léttur.
Lifandi og áður vinsælir mannfögnuðir urðu
nú fámennari og þátttaka í viðburðum minni
en væntingar stóðu til. Þessu hafa kollegar
okkar bæði hér á landi og í öðrum löndum
fundið fyrir.
Þátttaka fólks í viðburðum samfélagsins
skiptir máli. Hún skiptir ekki einungis máli fyrir
félögin okkar heldur ekki síst fyrir einstakling-
ana sjálfa, fólkið sem myndar félögin. Það er í
samskiptunum og samverunni sem allt verður
til. Þar eru kraftar sem við í ungmennafélags-
hreyfingunni og víðar tökum eftir og höfum
unnið að því að beisla. Allt verður einhvern
veginn betra og skemmtilegra þegar fleiri
vinna saman.
Fyrir þremur árum bættust Íþróttabandalag
Reykjavíkur, Íþróttabandalag Akureyrar og
Íþróttabandalag Akraness við UMFÍ. Nú í vet-
ur bættist Íþróttabandalag Hafnarfjarðar í rað-
irnar og eru þá öll íþróttafélög á höfuðborgar-
svæðinu aðilar að UMFÍ. Til viðbótar flutti
þjónustumiðstöð UMFÍ inn í Íþróttamið-
stöðina í Laugardal. Þar er stærstur
hluti íþróttahreyfingarinnar undir
einu þaki – ÍSÍ, UMFÍ, ÍBR og
UMSK auk fjölda sérsambanda.
Samstarfið og samvinnan innan
íþróttahreyfingarinnar er vax-
andi. Krafturinn er mikill og við
bindum vonir við að hann muni
aðeins aukast og gera gott starf
enn betra.
Margt í starfi íþrótta-
hreyfingarinnar þarf að
þróast og breytast. Þar
á meðal er uppbygging
íþróttahéraða, tilgangur
þeirra og hlutverk. Í íþróttalögum er kveðið á
um að eitt héraðssamband eða íþróttabanda-
lag skuli vera í hverju íþróttahéraði. Íslandi er
í dag skipt upp í 25 íþróttahéruð með sjö
íþróttabandalögum og átján héraðssambönd-
um og er þeim ætlað að vinna að fjölbreyttum
hagsmunamálum íþrótta- og ungmennafélaga
á hverju svæði. Íþróttahéruðin voru mörg
stofnuð á öðrum og þriðja áratug tuttugustu
aldar og standa þau óbreytt síðan þá. Hlutverk
þeirra hefur staðið óhaggað frá fyrsta degi.
Unnið er að eflingu þeirra, skarpara hlutverki
og að finna leiðir til að þau þjóni vel iðk-
endum og félögum í samtímanum.
Að leiðaralokum vil ég nota tæki-
færið og óska ykkur gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Setjum okkur markmið um aukna
hreyfingu og drögum okkar nán-
ustu með. Bætt lýðheilsa skiptir
máli og með því að huga að
henni verðum við sterkari saman,
samfélaginu til góða.
Jóhann Steinar
Ingimundarson,
formaður UMFÍ
Efnisyfirlit
14 Nærmynd af Valdimari Gunnarssyni
34 Skautaíþróttin springur út 38 Fólk hreyfir sig af því að það er gaman
– verkefnið Virkni og vellíðan
Leiðari Sterkari saman á nýju ári
22 Öflug og samræmd íþróttahéröð
6 Heimsókn fyrrverandi stjórnarfólks UMFÍ
8 Hvetur fólk til að lesa viðbragðs-
áætlunina
10 Vigdís tekur við Æskulýðsvettvanginum
11 Skoppbolti er heitasta greinin
vestanhafs
12 Frítími eldra fólks er miklu meiri en
ungmenna
20 Hver og einn þarf að upplifa það að
tilheyra samfélaginu
21 Fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni
25 Hafnfirðingar bætast við UMFÍ
26 Gera gott starf betra
– Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ
28 Börnin þurfa að leika sér oftar út á götu
– alþjóðleg ráðstefna ISCA í Brüssel
30 Tvö spennandi mót sumarið 2023
– Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki
– Landsmót UMFÍ 50 + í Stykkishólmi
40 Gerir íþróttafélagið þitt gagn?
41 Gamla myndin: Mót verður til
42 Hvað er að frétta: Leiðtoganámskeið í
reiðhöllinni