Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 8

Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 8
8 S K I N FA X I „Við erum rétt byrjuð að kynna samræmdu við- bragðsáætlunina fyrir forsvarsfólki félaga, á formannafundi ÍSÍ og víðar. Undirtektirnar hafa verið mjög góðar, enda er fólk ánægt með að fá loksins samræmda áætlun í hendur,“ segir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, samskiptaráðgjafi í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Hún fagnaði útgáfu viðbragðsáætlunarinnar með forsvarsfólki þeirra félagasamtaka sem að henni standa í Íþróttamiðstöðinni í byrjun nóvember. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna- málaráðherra, var viðstaddur og fékk fyrsta ein- takið afhent. Hann hélt við tækifærið ávarp þar Mikil fjölgun mála Embætti samskiptaráðgjafa í íþrótta- og æskulýðsstarfi var sett á laggirnar á fyrri hluta árs 2020 til að taka við tilkynningum um mögulega óæskilega hegðun í mála- flokknum. Mál af ýmsum toga koma inn á borð samskiptaráðgjafa og eru flokkuð eftir því hvort þau eru eineltismál, líkam- legt ofbeldi og kynferðisleg áreitni eða ofbeldi ásamt öðrum álíka málum. Fyrsta árið bárust embættinu 24 tilkynn- ingar, þar af sex eineltismál, átta um kyn- sem hann áréttaði mikilvægi áætlunarinnar og benti á mikilvægi þess að embætti samskipta- ráðgjafa hefði verið sett á laggirnar. „Þegar það fór af stað velti fólk fyrir sér hvaða áhrif það myndi hafa, hver þau yrðu og hvort embættið myndi virka. En ég held að óhætt sé að fullyrða að eftir þennan stutta starfstíma er þetta ótrúlega vel heppnað. Það er einstakt á heimsvísu,“ sagði hann og benti á að hann hefði skömmu áður fundað með ráðherrum íþrótta- mála hjá Evrópuráðinu. Þar hefði hann sagt frá starfi samskiptaráðgjafa og það vakið mikla athygli. Hvetur fólk til að lesa viðbragðsáætlunina Samræmd viðbragðsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf kom út með formlegum hætti í byrjun nóvember. Samskiptaráðgjafi hefur kynnt áætlunina fyrir forsvarsfólki ýmissa félagasamtaka. Viðbragðsáætlunin nær yfir ýmsa þætti í starfi félagasamtaka og er því upplagt að nota hana í forvarnaskyni. Gott forvarnartæki Samræmda viðbragðsáætlunin hvílir á stoðum nokkurra sambærilegra áætlana. Þessi er hins vegar stórbætt og hafa einstakir kaflar verið upp- færðir. Þá hefur verið bætt við kafla um hinsegin- leikann, fjölmenningu og inngildingu í félags- starf og andlega líðan, svo fátt eitt sé nefnt. Sigurbjörg segir upplagt að forsvarsfólk félagasamtaka kynni viðbragðsáætlunina innan sinna félaga og leggi áherslu á að fólk lesi hana, í það minnsta kynni sér hana í þaula, því það geti komið sér vel í daglegu starfi að vita hvernig bregðast skuli við smærri sem stærri uppákomum. „Það er mjög gott að styðjast við viðbragðs- áætlunina. Það er hægt að nota hana sem leið- arvísi þar sem fólk er leitt í gegnum erfið mál skref fyrir skref. Þarna eru líka leiðbeiningar varð- andi ýmis mál og hún nýtist einnig sem forvörn. Forsvarsfólk félaga getur líka notað hana sem vegvísi til að líta í eigin barm og spegla hvernig félagið er að standa sig í hinum og þessum mál- um,“ segir Sigurbjörg, sem hvetur fólk til að rýna í einstaka kafla til að átta sig á áætluninni. „Þetta er ekki bara ritið sem fólk grípur í þeg- ar neyðartilvik koma upp. Ég mæli með því að valinn einstaklingur eða fleiri lesi það og finni fleti á því sem nýtast til að bæta daglegt starf félagsins,“ bætir Sigurbjörg við, en hún mælir sérstaklega með rafrænni útgáfu viðbragðs- áætlunarinnar, sem má nálgast á https:// www.samskiptaradgjafi.is/verkfaerakista. Þar er nefnilega mögulegt að smella á kaflaheiti í efnisyfirliti og fara notendur þá beint á þann hluta ritsins sem óskað er eftir. Einnig er hægt að smella á blaðsíðutal hverrar síðu, sem færir notendur þá aftur til baka í efnisyfirlit. „Þetta auðveldar allan lestur, sérstaklega þar sem samræmda viðbragðsáætlunin er meira en hundrað síður,“ segir samskiptaráðgjafi. Margar hendur komu að gerð samræmdu viðbragðs- áætlunarinnar. Vinnuhópur vann að gerð hennar með fulltrúum frá Bandalagi íslenskra skáta (BÍS), Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta- og Ólympíusam- bandi Íslands (ÍSÍ), Kristilegu félagi ungra manna og kvenna (KFUM og K), Sam- skiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Ung- mennafélagi Íslands (UMFÍ) og Æskulýðs- vettvanginum (ÆV). Ragnheiður Sigurðar- dóttir var fulltrúi UMFÍ í vinnuhópnum. ferðislega áreitni eða ofbeldi og önnur mál af ýmsum toga. Sprenging varð ári síðar, en samkvæmt ársskýrslu ráðgjafans árið 2021 voru málin 79. „Við höfum ekki talið þetta út fyrir árið í ár en málin eru nú þegar orðin fleiri en í fyrra,“ segir Sigurbjörg en tekur fram að einnig berist samskiptaráðgjafa margar fyrirspurnir, sem verði ekki allar að málum til vinnslu. „Við getum í það minnsta búist við að talan muni hækka á milli ára,“ segir hún.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.