Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 17
S K I N FA X I 17
íþróttasal Gerplu. Þetta er alveg stórkostlega flott verkefni verð ég að
segja og það er næstum því ókeypis. Það eina sem þarf er að mæta á
staðinn og borga mánaðargjald sem er 3.500 krónur. Eins og staðan
er í dag er bara boðið upp á Virkni og vellíðan í Kópavogi. En þetta
verkefni verður að fara af stað víðar, helst um allt land og í öllum bæjar
og sveitarfélögum,“ segir hann, enda afar áhugasamur að tvinna sam-
an heilsueflingu og mannauðinn og þekkinguna sem er hjá öllum
íþróttafélögum landsins.
Fara kokhraustari inn í unglingsárin eftir
skólabúðir
Eins og lesa má af ofangreindu verða flest þau verkefni sem njóta góðs
af hugmyndaauðgi og útsjónarsemi Valdimars rótföst og vinsæl og hafa
flest þeirra dafnað og vaxið í marga áratugi.
Eitt af þessum verkefnum sem Valdimar kom að í upphafi er ung-
menna- og skólabúðir fyrir grunnskólakrakka sem hafa nú verið haldn-
ar árlega í mörg ár. Ungmennabúðirnar voru fyrstu árin á Laugum í
Sælingsdal en voru fyrir nokkrum árum fluttar á Laugarvatn. Nýverið
bættust líka við Skólabúðir á vegum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Þá
koma saman þúsundir barna úr ýmsum grunnskólum landsins til að
kynnast hvert öðru og mynda ný tengsl og nýjan vinskap við krakka úr
öðrum skólum, hverfum og landshlutum.
Í bæði ungmenna- og skólabúðunum er áhersla lögð á að börnin læri
samskipti og virka samveru með jafnöldrum sínum og eru því símar og
sjónvörp utan dagskrár. Þau koma einfaldlega ekki með. Í raun mætti
líkja skólabúðunum við eins konar manndóms- eða fullorðinsvígslu, því
margir foreldrar tala um að krakkar komi aðeins kokhraustari til baka
úr skólabúðunum og þá væntanlega betur í stakk búin til að sigla inn
í unglingsárin.
Útskrifaði orkumálastjóra úr trúðaskóla á
Grænlandi
Valdimar hefur öðru fremur horft til þess lengi að leita leiða til að styrkja
heilsueflingu almennings og búa til vettvang sem hefur það að mark-
miði að fólk á öllum aldri hreyfi sig.
Til að skapa svona fjölbreytta viðburði þarf góðar hugmyndir og á
þeim er sannarlega enginn skortur hjá Valdimari. Slíkri hugsun bjó
hann að þegar hann vann hjá Ungmennafélagi Íslands og sem fram-
kvæmdastjóri Norrænu æskulýðssamtakanna (NSU) í þrjú ár.
„Starf NSU gekk meðal annars út á að efla vestnorrænt samstarf milli
Íslands, Grænlands og Færeyja og tengja ungmenni frá þessum svæð-
um með fjölbreyttum hætti. Þegar kom að fulltrúum Íslands að skipu-
leggja sinn hluta var ákveðið að vera með trúðaskóla á Grænlandi,“
segir Valdimar og brosir við að rifja þetta upp.
„Við buðum sex ungmennum frá hverju landi að taka þátt og fengum
kennara úr trúðaskóla í Kaupmannahöfn til að taka kennsluna að sér.
Þetta heppnaðist alveg ævintýralega vel og hafði frábær áhrif á krakk-
ana, sem hafa í sjálfu sér notið góðs af þessari upplifun til frambúðar.
Meðal annars urðu til tveir starfandi leikarar og svo var hún Halla Hrund,
sem nú er orkumálastjóri, með í þessu námi. Ég held því alltaf fram að
trúðaskólinn á Grænlandi hafi hjálpað henni að komast áfram í lífinu og
meðal annars gerast kennari við Harvard,“ segir hann og hlær áður
en hann heldur áfram:
„Grænlendingar áttu að taka að sér að skipuleggja næsta námskeið
og voru með góðar hugmyndir en framkvæmdin gekk brösuglega,
svo að við tókum við spöðunum fyrir þá og settum upp kvikmynda-
gerðarskóla á Ísafirði. Við réðum Hilmar Oddsson leikstjóra og hans
hóp til aðstoðar og vorum svo heila viku á Ísafirði þar sem við gerðum
bíómynd í fullri lengd. Í myndinni töluðu Íslendingar íslensku, Færey-
ingar færeysku og Grænlendingar grænlensku. Ég man reyndar ekkert
út á hvað handritið gekk. En þetta var alveg geggjað verkefni og þessi
mynd á að vera til einhvers staðar,“ segir hann og ég hugsa að eflaust
þætti mörgum gaman að sjá hana enda mikil framúrstefna í gangi.
Heilbrigðari almenningur
Þegar Valdimar tók til starfa fyrir Ungmennasamband Kjalnesinga árið
2008 fannst honum tilgangur eða hlutverk þess svolítið óljós. Keppnis-
mótum hafði fjölgað verulega og öflug félög með sterka burði höfðu
tekið við því starfi sem áður var á herðum UMSK.
„Í þessu samhengi tókum við þá ákvörðun um að hugsa til heilsuefl-
ingar almennings og leita frekar eftir því að skapa alls konar fjölbreytta
viðburði sem hafa það eitt að markmiði að fleiri landsmenn, á öllum
aldri, taki upp á því að hreyfa sig í samfélagi við annað fólk,“ segir hann.
Af nýlegum verkefnum sem Valdimar hefur komið að skortir heldur
ekkert á frumlegheit eða uppátækjasemi. Í sumar sem leið stóð hann,
ásamt UMSK, að því að halda íþróttaveislu UMFÍ, en í því sambandi var
þremur hlaupamótum hleypt af stokkunum. Þau reyndust hvert öðru
skemmtilegra.
Þarna erum við að tala um hundahlaup UMFÍ og Non-stop dogwear
á Seltjarnarnesi, forsetahlaup með Guðna forseta á Bessastöðum og
Drulluhlaup Krónunnar í Mosfellsbæ.
„Hundahlaupið var smæsti viðburðurinn en samt voru þetta alveg