Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 22
22 S K I N FA X I
UMSK
HSK
USVS
USÚ
UÍA
HSÞ
UMSE
UÍF
UMSS
USAH
USVH
HSS
HSV
HSB
HHF
UDN
HSH
UMSB
ÍBR
ÍBH
ÍS
ÍRB
ÍBV
ÍA
ÍBA
A
ð afloknu sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á Húsavík
15.–17. október 2021 skipaði stjórn UMFÍ, í samræmi við
samþykkt þingsins, sérstakan vinnuhóp um íþróttahéruð
og lottóreglur. Var hópnum ætlað að fara með mál í
umboði stjórnar og samkvæmt samþykktum lögum UMFÍ.
Hópurinn var skipaður þeim Gunnari Þór Gestssyni, formanni, Guð-
mundi Sigurbergssyni, Guðmundu Ólafsdóttur, öllum úr stjórn UMFÍ,
Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur frá USÚ, Dagný Finnbjörnsdóttur frá HSV,
og Frímanni Ara Ferdinandssyni frá ÍBR.
Hlutverk hópsins er m.a. að halda áfram vinnu framtíðarnefndar um
málefni íþróttahéraða og aðild allra íþróttahéraða að UMFÍ. Nefndinni
var ætlað að skipa fulltrúa í nefnd um upplýsingakerfi ÍSÍ og UMFÍ og í
vinnuhóp um íþróttahéruð á vegum ÍSÍ. Þá á nefndin að vinna í skil-
greiningum á mælikvörðum íþróttastarfs í samvinnu við ÍSÍ. Einnig var
nefndinni ætlað að setja á reglulega fundi á milli íþróttahéraða á vett-
vangi UMFÍ, ásamt því að taka við tilfallandi verkefnum frá stjórn UMFÍ
á starfstíma sínum. Hópnum er ætlað að ljúka störfum á sambands-
þingi UMFÍ haustið 2023.
Smáir en knáir
Á sambandsráðsfundi UMFÍ sem haldinn var á Höfn í Hornafirði í októ-
ber 2022 kynnti hópurinn vinnu sína og varpaði fram ýmsum tillögum.
Að mati hópsins er hvert íþróttahérað að vinna eftir sínu höfði og
með fleiri og fjölbreyttari hlutverk en fram kemur í íþróttalögum, lög-
um UMFÍ og lögum ÍSÍ. Velta starfsmanna og sjálfboðaliða er hröð og
samræming og skilgreiningar milli héraða eru ekki til staðar. Íþrótta-
héruðin eru annars vegar sterkar einingar og hins vegar veikar eining-
ar. Margir meðlimir hópsins upplifa að almenn þekking og viðhorf á
Öflug og samræmd íþróttahéruð
íþróttahéruðum sé lítil. Margir smáir aðilar séu á meðal þeirra og sums
staðar einungis „skúffa“ til útdeilingar fjármuna.
Mismunandi áherslur eru innan íþrótta- og ungmennafélagshreyf-
ingarinnar eftir því á hvaða stig er litið. Á fyrsta stigi, hjá ÍSÍ og UMFÍ,
er ákveðin umgjörð til staðar þar sem eru lög, regluverk, sjóðir og
stuðningur. Þar er líka ákveðin sérþekking og sameiginleg þjónusta
fyrir hreyfinguna alla.
Á öðru stigi eru íþróttahéruðin sjálf, sem eru flest með nærþjónustu
í heimahéraði. Þau eru með verkefni og þjónustu fyrir aðildarfélög,
hvert á sínu svæði, og má segja að samræming sé við önnur íþrótta-
héruð og áhersluverkefni.
Á þriðja stiginu eru svo íþrótta- og ungmennafélögin í landinu. Þau
eru með skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem byggir á stuðningi
frá íþróttahéraðinu.
Vinnuhópurinn hefur fundað nokkrum sinnum og m.a. tekið eina
vinnustofu á Laugarvatni. Fullt samkomulag er í hópnum um að leggja
til ákveðna vegferð og vinna tillögu á þeim nótum.
Hópurinn kynnti m.a. á sambandsþinginu stjórnsýsluskipulagið
eins og það er hjá Landssamtökum sveitarfélaga. Þar er stjórnun eftir
landshlutum, með mörgum launagreiðendum, mörgum starfsstöðv-
um og dreifðri fjármögnun.
Hjá sýslumannsembættinu er líka stjórn á landsvísu en einn launa-
greiðandi. Þar eru margar starfsstöðvar og miðlæg fjármögnun.
Hugsanleg sviðsmynd
Hópurinn setti á sambandsþinginu fram hugsanlega sviðsmynd. Hún
fól í sér starfsstöðvar um landið sem myndu þjónusta nokkur íþrótta-
héruð. Starfsfólk á öllum starfsstöðvum væri með ákveðið samspil og
Lengi hefur verið rætt um nauðsyn þess að endurskoða málefni íþróttahéraða með það fyrir augum
að styrkja íþróttafélögin og starfið um allt land. Ýmsar sviðsmyndir hafa verið settar fram.
En hvernig er hljóðið innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar? Hér rýnum við í málið.
Blátt: Sambandsaðilar UMFÍ.