Skinfaxi - 01.03.2022, Síða 23
S K I N FA X I 23
samskipti yrðu milli starfsstöðva. Nefnt var samstarf og samvinna við
landshlutaskrifstofur sveitarfélaga. Einnig samstarf um verkefni á lands-
vísu, íþróttamál, lýðheilsu og mannvirki.
Í sviðsmyndinni er reiknað með að fjármögnun komi frá ríkinu og að
starfsemin mæti markmiðum íþróttastefnu ríkisins um að efla íþrótta-
héruð. Einnig að fjármagn komi frá Lottói í gegnum ÍSÍ og UMFÍ. Úthlut-
un yrði annars vegar til landshlutastarfsstöðva og hins vegar almenn
úthlutun.
Markmiðið yrði skilvirk og viðbragðsfljót hreyfing. Í því felst m.a. að
styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu, að hreyfingin verði
með skýra ábyrgð og hlutverk og að heildarsamtakamáttur verði þvert
Lög um íþrótthéruð
Í 6. grein íþróttalaga segir m.a. um íþróttahéruð:
• Landið skiptist í íþróttahéruð. Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands og Ungmennafélag Íslands annast skiptingu og breyt-
ingu á íþróttahéruðum.
Í 4. grein laga UMFÍ segir m.a.:
• UMFÍ skiptist í íþróttahéruð. Einnig geta ungmenna- og íþrótta-
félög innan íþróttahéraða sem ekki eru aðilar að UMFÍ gerst aðilar.
Í lögum ÍSÍ segir m.a.:
Hlutverk héraðssambanda/íþróttabandalaga er:
a) Að stjórna sameiginlegum íþróttamálum héraðsins og vera þar
fulltrúi ÍSÍ, en sérráð, er stofnuð eru, fara með stjórn sérgreina-
mála innan héraðsins.
b) Að annast samstarf um íþróttamál við sveitar- og bæjarstjórnir
og aðra opinbera aðila innan héraðs.
c) Að varðveita og skipta milli félaganna því fé, sem til þess hefur
verið veitt í því skyni.
d) Að aðstoða við skipulag, undirbúning og framkvæmd íþrótta-
móta í héraði.
e) Að hafa frumkvæði um eflingu íþróttastarfs innan héraðs.
f) Að staðfesta lög/lagabreytingar aðildarfélaga og halda utan um
á ungmennafélagshreyfinguna. Betri nýting verði á mannauði og aðföng-
um, aukið og samræmdara samspil á milli eininga í hreyfingunni og öfl-
ugur stuðningur og þjónusta við félög og fjölbreyttar þarfir um land allt.
Hópurinn lagði áherslu á að skipulag íþróttahéraða væri lykilhluti af
svarinu við því hvernig hreyfingin gæti náð markmiðunum um að vera
skilvirk, samræmd og viðbragðsfljót hreyfing í takt við kröfur nútímans.
Á sambandsráðsfundinum fór hópurinn fram á að fá stuðning og
umboð til þess að vinna tillögu varðandi skipulag íþróttahéraða frekar,
í samvinnu við hreyfinguna. Þar yrði komið inn á fjármögnun, útfærslu
og starfssvæði. Fundurinn samþykkti að veita hópnum umboð til
áframhaldandi starfa á þeim nótum.
staðfest lög félaga og skila yfirliti til ÍSÍ yfir lög aðildarfélaga í lok
hvers árs.
g) Að tilkynna ÍSÍ og viðkomandi sérsambandi um stofnun nýrra
félaga og deilda.
h) Að fylgjast með því að starfsemi aðildarfélaga fari fram skv. gild-
andi lögum þeirra og íþróttahreyfingarinnar í heild. Í því skyni skal
héraðssamband/íþróttabandalag hafa fullan aðgang að bókhaldi
og fylgiskjölum aðildarfélaga/sérráða sinna og ef ástæða þykir til
getur stjórn viðkomandi héraðssambands/íþróttabandalags til-
nefnt sérstakan skoðunarmann reikninga fyrir félagið og fyrirskip-
að ítarlega rannsókn á fjárreiðum viðkomandi aðildarfélags/sér-
ráðs. Aðildarfélag/sérráð getur krafist þess að bókhaldsgögn fari
eingöngu um hendur löggilts endurskoðanda.
Vanræki aðildarfélag að halda aðalfund á tilsettum tíma, skal stjórn
héraðssambandsins/íþróttabandalagsins, ef þörf krefur, boða til
fundarins og sjá um framkvæmd hans. Ársþingi héraðssambands/
íþróttabandalags er heimilt, hafi íþróttafélag ekki farið að lögum og/
eða fyrirmælum þess, að ákveða að víkja félaginu úr héraðssamband-
inu/íþróttabandalaginu. Ákveði ársþing héraðssambands/íþrótta-
bandalags að víkja félagi úr því er héraðssambandinu/íþróttabanda-
laginu skylt að tilkynna það til ÍSÍ og viðkomandi sérsambands/sér-
sambanda.