Skinfaxi - 01.03.2022, Page 24
24 S K I N FA X I
Vangaveltur úr hreyfinguni
Við spurðum forystufólk sambandsaðila þriggja spurninga um íþróttahéruð.
Eins og gefur að skilja eru svörin mismunandi.
Spurningarnar voru eftirfarandi:
1. Hafið þið myndað ykkur skoðun varðandi hugsanlegar breytingar á skipan íþróttahéraða?
2. Hvaða atriði skipta þar mestu máli?
3. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur framtíðarskipan íþróttahéraða?
1. spurning: Okkur finnst skyn-
samlegt að teikna upp kosti og
galla þess að sameina ákveðin
íþróttahéruð. Það er að mörgu
að hyggja og engin ástæða til að
ana út í sameiningar án augljósra
kosta þess.
2. spurning: Að þjónustan við
íþróttafélög og iðkendur verði
betri, eða í það minnsta síst slak-
ari ef farið verður í sameiningar
héraða.
3. spurning: Við höfum ekki
mótað okkur skoðun en erum til-
búin að skoða kosti þess og galla
að auka samstarf við nágranna
okkar hér á svæðinu.
1. spurning: Við höfum komið
fram með tillögur á Íþróttaþingi
ÍSÍ um breytingar íþróttahéraða
þannig að við erum opin fyrir að
skipulagið verði endurskoðað og
teljum reyndar fulla þörf á því,
enda hefur margt breyst síðan
1944.
2. spurning: Mestu máli skiptir
að fjölbreytt framboð á íþrótta-
starfi sé eins gott og kostur er á
hverju svæði, sérstaklega fyrir
börn og unglinga.
3. spurning: Það er mikilvægt
að öll íþróttahéruð hafi fjárhags-
legan grunn til að vera með a.m.k.
einn starfsmann á hæfilega stóru
svæði til að sinna því starfi sem
þarf að sinna, bæði lögbundnu
sem og að aðstoða félögin á
Geir K. Aðalsteinsson, formaður
ÍBA.
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR.
svæðinu og vera í samstarfi við
ýmsa aðila um íþróttastarfið. Það
gengur ekki að treysta bara á
sjálfboðaliða í því.
1. spurning: Heilt yfir líst okkur
nokkuð vel á þessar breytingar.
Fyrst og fremst erum við ánægð
með vinnuna sem hefur verið í
kringum þetta. Með því að fá allt
þetta fólk í samræðurnar þá von-
um við að allir hafi fengið að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri og
að þessar sameiningar séu á for-
sendum héraðanna. Við þurfum
að eiga samtöl við fleiri aðila til
þess að mynda okkur lokaskoð-
un á þessu máli.
2. spurning: Að okkar mati
skiptir mestu máli að héraðið haldi
tengslum við öll félög á sínu svæði.
Ef íþróttahéröðin ná yfir of stórt
svæði er hætta á að þau missi
tengsl við félög sem eru langt frá
starfsmönnum og öðrum aðilum
sem taka þátt í starfi héraðanna.
3. spurning: Okkar skoðun lit-
ast aðallega að því hvernig við
Benedikt Jónsson, formaður ÚÍA.
sjáum framtíð okkar íþróttahéraðs.
Við teljum að svæði UÍA nái yfir
ansi stórt landssvæði og því myndu
sameiningar fyrir okkar samband
vera erfiðar og hamla starfi íþrót-
tahéraðsins. En við teljum að það
þurfi að halda samtalinu áfram
til þess að við náum að mynda
okkur skoðun á framtíðarskipan
íþróttahéraða.
1. spurning: Við hjá UMSB höf-
um ekki mótað okkur heildstæða
skoðun í þessum málum en teljum
mikilvægt að tekið sé alvarlegt
samtal um framtíðarskipulag
íþróttamála á Íslandi og gefin sé
góður tími í samráð og skipulag.
Við teljum að það sé virkileg þörf
á því að taka alvarlegt samtal um
framtíðarsýn íþróttamála á Íslandi
í stóru samhengi. Mikilvægt er að
hugsa um hvernig við værum að
skipuleggja starfið ef við værum
að byrja á byrjunarreit. Staðan í
dag er ekki sú sem hægt er að
treysta á til framtíðar og þörf er á
breytingum en um þær þarf fyrst
og fremst að skapast sátt.
2. spurning: Það þarf að passa
upp á að allir hafi jafnan aðgang
og enginn sé skilin eftir, sérstak-
lega þegar litið er til hinna dreifðu
byggða. Það sem skiptir öllu í
þessu máli er að vandað sé til
verka, öllum sé ljóst hvers vegna
það sé til hagsbóta fyrir íþrótta-
héruð að sameinast. Með stærðar-
Sonja Lind Estrajher Eyglóar-
dóttir, formaður UMSB.
hagkvæmni má ná fram meiri
árangri en það má ekki vera á
kostnað smærri aðildarfélaga.
3. spurning: Það er ljóst að
það er þörf á sameiningu að ein-
hverju leiti, en við teljum ekki rétt
að svara þessari spurningu fyrr en
búið er að taka samtal milli allra
aðila. UMSB er tilbúið að til þess
að taka þátt í slíkri vinnu.